Enski boltinn

Sunderland leitt til slátrunar

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Beneteke fagnar marki á Villa Park í kvöld.
Beneteke fagnar marki á Villa Park í kvöld. Nordicphotos/Getty
Belginn Christian Benteke reimaði skotskóna á sig fyrir alvöru á Villa Park í kvöld þegar Aston Villa burstaði Sunderland 6-1 í ensku úrvalsdeildinni.

Eftir nokkuð jafnar upphafsmínútur komust heimamenn yfir með marki úr ólíklegustu ár. Þá skoraði hollenski miðvörðurinn Ron Vlaar með þrumuskoti langt utan af velli. Villa var enn að fagna markinu þegar þeir staðan var orðin jöfn.

Nafnarnir Danny Graham og Danny Rose léku boltanum þá skemmtilega á milli sín. Það kom í hlut vinstri bakvarðarins að setja boltann fram hjá Guzan í markinu og jafna metin. Enginn fagnaði markinu meira en Paolo Di Canio, stjóri Sunderland, sem vill þó líklega gleyma kvöldinu sem fyrst.

Andreas Weimann kom Villa yfir fyrir hlé með laglegu marki eftir undirbúning Matthew Lowton. Í síðari hálfleik blésu heimamenn til stórsóknar og var Benteke í aðalhlutverki.

Sessegnon sér rautt.Nordicphotos/Getty
Á 55. mínútu fylgdi hann á eftir skoti Agbonlahor og fimm mínútum síðar stangaði hann boltann af krafti í markið eftir hornspyrnu. Þrennan var fullkomnuð á 72. mínútu þegar Belginn nýtti sér klaufagang í vörn gestanna og skoraði.

Enn þyngdist brúnin á Di Canio á 88. mínútu þegar Agbonlahor slapp einn í gegn og skoraði auðveldlega. Markið var han 61. í ensku úrvalsdeildinni og er hann nú markahæsti leikmaður Villa í sögu úrvalsdeildarinnar. Metið var í eigu Dwight Yorke.

Sigurinn þýðir að Aston Villa er komið upp að hlið Sunderland og Newcastle með 37 stig. Villa hefur, þrátt fyrir tapið stóra og 6-0 tap Newcastle um helgina, langverstu markatöluna. Wigan er nú fimm stigum á eftir liðunum þremur í 18. sæti deildarinnar og útlitið kolsvart hjá liðsmönnum Roberto Martinez.

Stephane Sessegnon fékk að sjá rautt spjald um miðjan síðari hálfleikinn og er fyrir vikið á leiðinni í leikbann.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×