Útséð með aðgerðir gegn stjórn Bashars al-Assad í bili 1. september 2013 22:34 Almennt var álitið að Barack Obama hygðist tilkynna um hernaðaraðgerðir gegn Sýrlandi, en hann ákvað að vísa málinu til þingsins. Það mun fresta aðgerðum um tíma.Nordicphotos/AFP
Útséð er með að vesturveldin geri árásir á skotmörk í Sýrlandi á allra næstu dögum eftir að Barack Obama Bandaríkjaforseti vísaði um helgina ákvörðun um hernaðaríhlutun til þingsins. Rannsóknarteymi á vegum Sameinuðu þjóðanna sem hefur skoðað verksummerki á stað þar sem sýrlenski stjórnarherinn er sakaður um að hafa beitt efnavopnum, sneri aftur til Hollands á laugardag og hefst nú handa við að skera úr um hvað átti sér stað. Ekki er vitað hvenær þær niðurstöður gætu legið fyrir. John Kerry, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, sagði í samtali við fjölmiðla í gær að Bandaríkjamenn hefðu sannanir fyrir því að sarín-gas hefði verið notað í mannskæðum árásum í úthverfi Damaskus hinn 21. ágúst. Hann segir niðurstöður rannsókna á hár- og blóðsýnum, sem safnað var eftir árásina, staðfesta þetta og gaf jafnframt í skyn að þær sannanir sem hann hefði undir höndum væru ekki frá Sameinuðu þjóðunum. Árásin er talin hafa kostað yfir 1.400 manns lífið, þar af tæplega fimm hundruð börn. Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, ákvað á laugardag að fresta árásum sem beina átti gegn sýrlensku ríkisstjórninni þangað til samþykki Bandaríkjaþings lægi fyrir. Þessi sinnaskipti komu nokkuð á óvart, enda hafði Obama á fyrri stigum málsins lýst því yfir að litið yrði á notkun efnavopna sem ákveðna rauða línu, sem myndi kalla á aðgerðir.Heimildir innan bandaríska stjórnkerfisins herma að Obama hafi verið ákveðinn í að boða hernaðaraðgerðir, en hafi snúist hugur á föstudagskvöld og ákveðið að leita samþykkis hjá þinginu. Forsetinn sagði í ávarpi á laugardag að aðgerðir af hálfu Bandaríkjanna yrðu takmarkaðar að umfangi og útilokaði að landhernaði yrði beitt. Þótt Kerry tæki skýrt fram að forsetinn hefði vald til að taka ákvörðun sem þessa, og segðist sannfærður um að þingið heimili hernaðaríhlutun Bandaríkjanna í Sýrlandi, túlkuðu margir, þar á meðal ráðamenn í Sýrlandi, þetta útspil forsetans sem veikleikamerki og hik. Í gær blés Bashar al-Assad Sýrlandsforseti á allar fyrirætlanir um ?erlenda yfirgangssemi?. Þeim yrði mætt af hörku ?rétt eins og Sýrland mætir innlendum yfirgangsseggjum á hverjum degi, bæði hryðjuverkahópum og þeim sem styðja þá?. Breska þingið hafnaði í síðustu viku tillögu frá David Cameron forsætisráðherra um leyfi til að beita hervaldi gegn Sýrlandsstjórn. Aukinn þrýstingur hefur verið á François Hollande Frakklandsforseta, sem styður vopnaða íhlutun í Sýrlandi, að leggja málið fyrir þingið. Honum ber ekki skylda til slíks, en fyrirhugað er að taka málið upp á þingi á miðvikudag.
Mest lesið „Það er brjálað að gera með stóru B-i“ Innlent Fari mjög líklega aftur í „Ég sagði það“-frakkann næsta vor Innlent Níu nauðgunarákærur bætast við langan lista Erlent Áfram geisar innbrotahrinan Innlent Tate-bræður teknir fastir í Miami Erlent Bílvelta í Skötufirði Innlent Jákvætt ef stjórnvöld séu loksins farin að horfast í augu við stöðuna Innlent Hryðjuverkamálið frá upphafi til enda Innlent „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Breikkun á Kjalarnesi boðin út eftir margra ára seinkun Innlent Fleiri fréttir Mamdani skoðar að láta handtaka Netanjahú Níu nauðgunarákærur bætast við langan lista Mörg hundruð manns hafa misst heimili sín í stórbrunanum í Noregi Háskólinn á Grænlandi fer ekki í samstarf við Bandaríkjamenn Ekki lengur ákærður fyrir tilraun til manndráps Búið að ráða niðurlögum eldsins Tate-bræður teknir fastir í Miami Tveir bandarískir hermenn látnir eftir árásir Írans Forseti Ungverjalands segir af sér Þriðja hitabylgjan nálgast: Hiti gæti náð 45 gráðum á Spáni Skógræktarstarfsmönnum haldið í gíslingu í hjólhýsi Fjölskyldur kvennanna í sárum eftir nýjar fréttir Maður fluttur með sjúkraflugi undir læknishendur eftir hákarlaárás Ríflega fimm þúsund látnir í kjölfar skjálftanna Árásarmaðurinn hafi sagst „ekki geta meir“ Ekki með tök á eldinum og slökkviliðsstjóri hljóp á sig Hótar tollum vegna skógareldanna Yfir hundrað íbúðir gjörskemmdar Segir erfitt að horfa upp á nágranna missa aleiguna Rúmlega 50 heimili horfin í stórbruna í Drammen Flóka saknað og grunur um þjófnað Skotárás við Álaborg Boðar aukin ríkisafskipti og heitir því að verða áfram „maður fólksins“ Mótmælt í Kænugarði vegna uppsagnar varnarmálaráðherrans Reykur frá skógareldum í Kanada veldur vandræðum víða Gerðu árásir á Íran sjötta daginn í röð Trump sáir efasemdafræjum í aðdraganda þingkosninga Gróðureldar loga stjórnlaust og fólki ráðlagt að halda sig innandyra Fimmtíu og sjö með stöðu sakbornings vegna vanrækslu brúar R. Kelly biðlar til Trump um að milda fangelsisdóminn Sjá meira