Konungleg skírn í London Elísabet Hall skrifar 23. október 2013 20:30
Skírnin fór fram í höll Heilags James í miðborg London í dag en athöfnin var lítil og var aðeins nánasta fjölskylda og vinir Vilhjálms Bretaprins og Katrínar Hertogaynju viðstaddir. Fjölmargir Bretar söfnuðust fyrir utan höllina og höfðu einhverjir beðið frá því í gær. Maria Scott, íbúi í London, var ein þeirra „Það var erfitt að bíða í nótt í rigningunni og við urðum holdvot, en við viljum vera hérna fyrir skírnina hjá prinsinum. Við vorum við spítalann þegar hann fæddist og við viljum vera hérna fyrir skírnina líka.” Með því að skíra í höll Heilags James víkja ungu hjónin talsvert frá fyrri hefðum en venjulega hafa ríkisarfar verið skírðir í Buckingham höll. Hafa sumir haldið því fram að athöfnin hafi verið haldin þar vegna tengsla fjölskyldunnar við höllina en Díana prinsessa var lögð þar til hvílu áður en útför hennar fór fram. Sjö nánir fjölskylduvinir voru valdir til að vera guðforeldrar drengsins sem fæddist 22. júlí. Erkibiskupinn af Kantaraborg, Justin Welby, var staddur á Íslandi í gær en flaug heim til Bretlands til að skíra piltinn. „Það gefur manni tilfinningu fyrir því að horfa fram á veginn, hvernig sagan líður áfram en hefur um leið sína fortíð. Þvílík gjöf að fá þetta nýja líf og horfa fram á veginn.“ Eins og foreldrarnir höfðu áður tilkynnt fékk prinsinn, sem er þriðji í röðinni um bresku krúnuna, nafnið George Alexander Louis sem á íslensku hefur verið útfært sem Georg Alexander Loðvík.
Mest lesið Úkraínumenn gáfu Kananum á baukinn Erlent Tókst á við umdeilda rabbínann: „Þú ert hættulegur maður“ Innlent Íbúar flúðu undan tónlistarhátíð Bjarkar Innlent Komu í veg fyrir launmorð á Bandaríkjamanni í Varsjá Erlent Steingrímur segir nei vegna reynslu af fyrri aðildarviðræðum Innlent Rafflugvél sem gæti hentað Íslandi flýgur í fyrsta sinn Innlent Mangione sagður ætla að játa Erlent Forskot Já-hliðarinnar mælist minna Innlent Sé verið að senda röng skilaboð til „kaldrifjaðra morðingja“ Innlent Hafa áhyggjur af geðheilsu þúsunda sjóliða Erlent Fleiri fréttir Komu í veg fyrir launmorð á Bandaríkjamanni í Varsjá Hafa áhyggjur af geðheilsu þúsunda sjóliða Úkraínumenn gáfu Kananum á baukinn Mangione sagður ætla að játa Mannskæð sprenging í stærstu höfn Evrópu Sagður hafa setið fyrir foreldrum sínum áður en hann myrti þau Senda inn liðsauka þar sem landtökumenn sitja um heimili Palestínumanna Handtóku og ákærðu baráttukonu gegn Kú Klúx Klan Stefna Trump vegna sölu á samfélagsmiðlafærslum hans Olíuborunum á Grænlandi frestað eftir viðræður við stjórnvöld Leavitt hættir hjá Trump ICE-liðar fá rafmagnshanska Létu sprengjum rigna á rússneska flotastöð við Svartahaf Ófrjósemi: Gervigreindin notuð til að finna sáðfrumur í geldsæði Farage etur kappi við grínara og aðra furðufugla Blaðamenn og aðrir farþegar notaðir sem tálbeita? Þúsunda saknað og tíminn að renna út Stríðsfangar barðir og beittir kynferðislegu ofbeldi Pútín vildi ekkert fyrir Bandaríkjamann í rússnesku fangelsi Norskir nei-sinnar bæta við sig Ætla að senda alla sem brutust inn í Ceuta til baka Vill aðskilja bólusetningar gegn mislingum, hettusótt og rauðum hundum Efnt til æfinga í Taívan fyrir umfangsmikið rof á fjarskiptum Assad dæmdur til dauða í heimalandinu Réttað yfir fyrrverandi glæpaforingja vegna morðsins á Tupac Flaug hvorki með gömlu né nýju Air Force One Dregur enn frekar úr líkum á samningi með skaðabótakröfu Fylgdust með rússneskum njósnara gefa útsendara gjöf Tala látinna komin yfir hundrað Brutu reglur þegar þau tilkynntu óvart andlát konungsins Sjá meira