Vék sér undan árásum Steenbrücks Guðsteinn Bjarnason skrifar 2. september 2013 10:45 Merkel og Steenbrück í sjónvarpseinvígi. Nordicphotos/AFP
Angela Merkel Þýskalandskanslari og Peer Steenbrück, leiðtogi Sósíaldemókrata, tókust í sjónvarpseinvígi á um kreppu evrulandanna og njósnir Bandaríkjanna, en voru sammála um að taka engan þátt í hugsanlegum loftárásum á Sýrland. Þingkosningar verða í Þýskalandi á mánudaginn næsta. Sjónvarpseinvígið í gærkvöld þótti heldur dauflegt og varla líklegt til að breyta stöðunni. Tímaritið Der Spiegel segir að niðurstaðan hafi orðið núll-núll. Merkel hefur enn yfirburði í skoðanakönnunum, og má það einkum þakka góðu ástandi í efnahagslífi Þýskalands. Þjóðverjar virðast upp til hópa ánægðir með hvernig Merkel hefur staðið sig gagnvart Grikklandi og öðrum evruríkjum, sem hafa glímt við erfiðan skuldavanda á síðustu misserum. Steenbrück var í árásarham og reyndi að skjóta föstum skotum á Merkel, en hún vék sér fimlega undan og lét ekkert koma sér úr jafnvægi. Þau voru sammála um að Þjóðverjar muni ekki taka þátt í loftárásum á Sýrland og Merkel sagðist fagna því að nú gefist nokkurra daga hlé til að ræða málin. Þar vísaði hún til ákvörðunar Baracks Obama Bandaríkjaforseta um að vísa málinu til Bandaríkjaþings. Steenbrück gagnrýndi Merkel fyrir að hafa ekki gert hreint fyrir sínum dyrum hvað varðar víðtækar njósnir bandarísku leyniþjónustunnar, sem fylgist með síma- og netsamskiptum einstaklinga, stofnana og fyrirtækja víða um heim. Merkel sagði hins vegar ekkert benda til þess að Bandaríkjamenn stundi slíkar njósnir í miklum mæli í Þýskalandi, og þetta mál hefur að minnsta kosti ekki enn dregið neitt úr fylgi hennar í Þýskalandi.
Mest lesið „Þessir helvítis útlendingar skilja ekki neitt“ Innlent Sá sem féll í Ölfusá er látinn Innlent Maðurinn leitaði ítrekað hjálpar án viðbragða lögreglu Innlent Hóta því að hleypa ekki einasta dropa af olíu eða gasi um sundið Erlent Maður sem féll í Ölfusá fundinn Innlent Gréta María og Hrund til liðs við Sjá Innlent Sólin gæti litið við í borginni um helgina Veður Atli Steinn biðst auðmjúkur afsökunar Innlent Foreldrar velta fyrir sér „innivistartíma barna“ Innlent „Konungur norðursins“ sjöundi forsætisráðherrann á áratug Erlent Fleiri fréttir Skoða að auka umfang árása enn frekar Vill færa Bretum von á nýjan leik Auka þrýstinginn á Taívan verulega Ekkert lát á útbreiðslu ebólu í Austur-Kongó „Konungur norðursins“ sjöundi forsætisráðherrann á áratug Usha og JD Vance eignast sitt fjórða barn Hóta því að hleypa ekki einasta dropa af olíu eða gasi um sundið Fleiri en hundrað um borð í ferju sem hvolfdi Mamdani skoðar að láta handtaka Netanjahú Níu nauðgunarákærur bætast við langan lista Mörg hundruð manns hafa misst heimili sín í stórbrunanum í Noregi Háskólinn á Grænlandi fer ekki í samstarf við Bandaríkjamenn Ekki lengur ákærður fyrir tilraun til manndráps Búið að ráða niðurlögum eldsins Tate-bræður teknir fastir í Miami Tveir bandarískir hermenn látnir eftir árásir Írans Forseti Ungverjalands segir af sér Þriðja hitabylgjan nálgast: Hiti gæti náð 45 gráðum á Spáni Skógræktarstarfsmönnum haldið í gíslingu í hjólhýsi Fjölskyldur kvennanna í sárum eftir nýjar fréttir Maður fluttur með sjúkraflugi undir læknishendur eftir hákarlaárás Ríflega fimm þúsund látnir í kjölfar skjálftanna Árásarmaðurinn hafi sagst „ekki geta meir“ Ekki með tök á eldinum og slökkviliðsstjóri hljóp á sig Hótar tollum vegna skógareldanna Yfir hundrað íbúðir gjörskemmdar Segir erfitt að horfa upp á nágranna missa aleiguna Rúmlega 50 heimili horfin í stórbruna í Drammen Flóka saknað og grunur um þjófnað Skotárás við Álaborg Sjá meira