Partýprinsessan í hnapphelduna 8. júní 2013 20:13
Sænska prinsessan Magðalena gekk að eiga bresk-bandaríska viðskiptajöfurinn Christopher O'Neil í dag. Þau voru gefin saman í Hallarkirkjunni í Stokkhólmi við glæsilega athöfn sem fór bæði fram á sænsku og ensku. Um fimm hundruð gestir voru staddir í kirkjunni, allt frá kóngafólki yfir í fræga einstaklinga. Meðal gesta var til að mynda John Taylor sem er líklega frægastur fyrir að hafa verið í hljómsveitinni Duran Duran. Og svo kóngafólk frá Evrópu og Japan. Brúðkaupið var smærra í sniðum en það síðasta. Og kóngurinn borgaði það sjálfur. Tvö ár eru síðan eldri systir Magðalenu, Viktoría, giftist einkaþjálfara sínum. Það brúðkaup var mun stærra í sniðum en brúðkaupið í dag. Sérfræðingar í kóngafólki segja í samtali við BBC að það sé meðal annars vegna þess að brúðkaupið er í raun einkabrúðkaup. Þannig greiddi faðir Magðalenu, Karl Gústaf konungur, fyrir allt tilstandið en ekki sænska ríkið. Það vantaði þó ekki upp á glæsileikann, en hjónunum var ekið í opnum hestvagni í kirkjuna sem þúsundir fylgdust með. Hjónakornin kynntust fyrir þremur árum síðan í Bandaríkjunum þegar Magðalena var að störfum fyrir góðgerðarsjóð þar í landi. Þá var hún tiltölulega nýhætt með unnusta sínum, sem var sænskur lögfræðingur. Athöfnin fór bæði fram á sænsku og ensku. Magðalena hefur átt í nokkuð stormasömu sambandi við gulu pressuna á Norðurlöndum. Þar var hún oft uppnefndi sem partýprinsessan. Ástæðan var sú að það sást oft til hennar að drykkju á fínustu skemmtistöðum Svíþjóðar. Eftir brúðkaupið stefna hjónin á að fara til Bandaríkjanna þar sem þau starfa bæði. Og fyrir þá sem hafa áhuga þá var það ítalski fatahönnuðurinn Valentino Garavani sem hannaði brúðarkjólinn.
Mest lesið Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Innlent Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Erlent Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Innlent Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit Innlent Netanjahú greindist með krabbamein Erlent Gerðu árás á mörgum stöðum á sama tíma Erlent Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Innlent Hlýtt í dag en kuldi í kortunum Veður Gasabúar kjósa í fyrsta sinn í tuttugu ár Erlent Segja engan fund á dagskrá Erlent Fleiri fréttir Gerðu árás á mörgum stöðum á sama tíma Gasabúar kjósa í fyrsta sinn í tuttugu ár Segja engan fund á dagskrá Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Netanjahú greindist með krabbamein Sendimenn Trump fara á fund utanríkisráðherra Írans á morgun Vesturlönd tali opinskátt um fyrirætlað stríð við Rússland Ræða ekki loftslagsmál á umhverfisfundi til að friðþægja Bandaríkjastjórn Sækir aftur um reynslulausn Handtaka hermann sem veðjaði á að Maduro yrði tekinn Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Lánið í höfn og Harry veitir Trump óumbeðin ráð Segir vopnahlé framlengt um þrjár vikur Fyrirtæki MrBeast sakað um að afsaka kynferðislega áreitni Skjóta á alla báta sem leggja tundurdufl Með lista yfir góða og slæma bandamenn Fimm í lífshættu eftir lestarslysið Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Vélmennið Ace sigrar atvinnumenn í borðtennis Tóku tvö skip og réðust á það þriðja Óvænt jafntefli í kjördæmastríðinu Sækja mannréttindasamtök til saka vegna njósna um öfgamenn Vilja senda afganska bandamenn og fjölskyldur til Kongó Hætta að styrkja Feneyjartvíæringinn vegna þátttöku Rússa Vilja tæpar tvö hundruð billjónir til varnarmála Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Framlengir vopnahléið og herkvína Þriðji þingmaðurinn segir af sér á viku Viðræður enn á ís vegna „óásættanlegrar“ hegðunar Ein af hinstu óskum Frans páfa enn óuppfyllt Sjá meira