Handtekinn með riffil og skotvopn í grunnskóla Kristjana Arnarsdóttir skrifar 21. ágúst 2013 22:29 Timothy Hill, bróðir tilræðismannsins, segir í samtali við ABC fréttastofuna að bróðir sinn hafi lengi glímt við geðræn vandamál. Skjáskot
Tvítugur maður að nafni Michael Brandon Hill var handtekinn við grunnskóla í Atlanta í Georgíufylki í Bandaríkjunum í dag en maðurinn hafði í fórum sínum 500 skot og var vopnaður riffli. Samkvæmt vefsíðu BBC hélt maðurinn tveimur í gíslingu á skrifstofu skólans og skaut hann að lögreglumönnum sem höfðu umkringt skólann. Starfsmaður skólans, Antoinette Tuff, var annar gíslanna og sagði hún í viðtali við fréttamenn að hún hefði talað Hill til og beðið hann um að gefa sig fram við lögreglu. Rýma þurfti bygginguna í hvelli þegar upp komst um tilræðismanninn og voru allir 800 nemendur skólans sendir heim. Enginn slasaðist í aðgerðunum. Hinn tvítugi tilræðismaður var handtekinn og sætir nú fjölda ákæra, meðal annars fyrir grófa árás á lögregluþjón og hryðjuverkaógn. Cedric Alexander, yfirlögregluþjónn á svæðinu, segist ekki vita til þess að Hill hafi þekkt nokkuð til skólans og að tilefnið sé algjörlega óljóst. Þá telja lögregluyfirvöld að tilræðismaðurinn hafi komist inn í skólann með því að ganga á eftir einhverjum sem hafði aðgang, annað hvort á eftir nemanda eða starfsmanni. Timothy Hill, bróðir tilræðismannsins, segir í samtali við ABC fréttastofuna að bróðir sinn hafi lengi átt við geðræn vandamál að stríða. Frá sex ára aldri hafi hann tekið inn lyf vegna hegðunarvandamála.
Mest lesið „Ég er ekki búinn að afskrifa hana“ Innlent „Maður vill trúa kúnnunum sínum“ Innlent „Fær þessar fréttir og við förum að gráta og allt ömurlegt“ Innlent Ákærður fyrir morðið á Widdecombe Erlent Hætta rannsókn á andláti á Hraunbúðum Innlent „Þessir helvítis útlendingar skilja ekki neitt“ Innlent Segir ótímabært að ræða undanþágur Innlent Sá sem féll í Ölfusá er látinn Innlent Atli Steinn biðst auðmjúkur afsökunar Innlent Frestun á frestun ofan í martraðarheimferð frá Gautaborg Innlent Fleiri fréttir Ákærður fyrir morðið á Widdecombe Tíu látnir eftir árásir Rússa á flutningaskip Skoða að auka umfang árása enn frekar Vill færa Bretum von á nýjan leik Auka þrýstinginn á Taívan verulega Ekkert lát á útbreiðslu ebólu í Austur-Kongó „Konungur norðursins“ sjöundi forsætisráðherrann á áratug Usha og JD Vance eignast sitt fjórða barn Hóta því að hleypa ekki einasta dropa af olíu eða gasi um sundið Fleiri en hundrað um borð í ferju sem hvolfdi Mamdani skoðar að láta handtaka Netanjahú Níu nauðgunarákærur bætast við langan lista Mörg hundruð manns hafa misst heimili sín í stórbrunanum í Noregi Háskólinn á Grænlandi fer ekki í samstarf við Bandaríkjamenn Ekki lengur ákærður fyrir tilraun til manndráps Búið að ráða niðurlögum eldsins Tate-bræður teknir fastir í Miami Tveir bandarískir hermenn látnir eftir árásir Írans Forseti Ungverjalands segir af sér Þriðja hitabylgjan nálgast: Hiti gæti náð 45 gráðum á Spáni Skógræktarstarfsmönnum haldið í gíslingu í hjólhýsi Fjölskyldur kvennanna í sárum eftir nýjar fréttir Maður fluttur með sjúkraflugi undir læknishendur eftir hákarlaárás Ríflega fimm þúsund látnir í kjölfar skjálftanna Árásarmaðurinn hafi sagst „ekki geta meir“ Ekki með tök á eldinum og slökkviliðsstjóri hljóp á sig Hótar tollum vegna skógareldanna Yfir hundrað íbúðir gjörskemmdar Segir erfitt að horfa upp á nágranna missa aleiguna Rúmlega 50 heimili horfin í stórbruna í Drammen Sjá meira