Erlent

Lögregla mun verða sýnilegri

Ingibjörg Bára Sveinsdóttir skrifar
Þjófarnir í miðborg Óslóar  eru helst á höttunum eftir farsímum.
Þjófarnir í miðborg Óslóar eru helst á höttunum eftir farsímum.
Lögreglan í Ósló í Noregi ætlar að auka eftirlit á götum úti vegna fjölda rána í borginni að undanförnu. Greint var frá því á vef Aftenposten í gær að 98 rán hefðu verið framin það sem af er október en 103 í september. 36 hafa verið handteknir vegna 26 rána. Flest ránin eru framin að kvöldi til um helgar og flest í miðborginni.

Þjófarnir eru helst á höttunum eftir farsímum, einkum Apple-vörum, að því er haft er eftir lögreglunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×