Erlent

Xilai ákærður fyrir mútur, spillingu og misbeitingu valds

Gunnar Valþórsson skrifar
Xilai er 1,85 sentímetrar á hæð, vel yfir meðalhæð þannig að lögreglumennirnir honum til sitthvorrar handar eru vörpulegir.
Xilai er 1,85 sentímetrar á hæð, vel yfir meðalhæð þannig að lögreglumennirnir honum til sitthvorrar handar eru vörpulegir.
Réttarhöldum yfir kínverska stjórnmálamanninum Bo Xilai er nú lokið.

Málið hefur vakið mikla athygli í Kína en á sínum tíma var Bo Xilai ein skærasta stjarna kínverska kommúnistaflokksins og af mörgum talinn framtíðarleiðtogi. Ferillinn fór hinsvegar út um þúfur þegar kona hans var sakfelld fyrir morð á breskum kaupsýslumanni og síðan var Bo Xilai sjálfur ákærður fyrir mútur, spillingu og misbeitingu valds.

Xilai hefur staðfastlega haldið fram sakleysi sínu og krefjast saksóknarar þess að hann verði dæmdur til þyngstu refsingar, ekki síst vegna þess að hann hafi enga iðrun sýnt við réttarhöldin. Búist er við því að dómur verði kveðinn upp innan nokkurra daga.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×