Sýrlandsstjórn fellst á rannsókn í Arbin 26. ágúst 2013 07:00 Harðir bardagar hafa geisað undanfarna daga milli stjórnarhersins og uppreisnarmanna í austurhverfum höfuðborgarinnar Damaskus. nordicphotos/AFP
Sendinefnd rannsóknarmanna frá Sameinuðu þjóðunum bíður nú í Damaskus eftir leyfi til að komast inn á vettvang efnavopnaárásarinnar sem gerð var í einu úthverfa borgarinnar og kostaði hundruð manna lífið á miðvikudaginn í síðustu viku. Líkurnar á inngripum Vesturlanda virðast aukast með hverjum deginum, en viðbrögð Vesturlanda ráðast væntanlega af því hver niðurstaðan af rannsókninni verður. Yfirmenn herafla Bandaríkjanna, Bretlands, Frakklands, Þýskalands, Ítalíu, Tyrklands, Kanada, Sádi-Arabíu og Jórdaníu hittust í Jórdaníu í gær til að fara yfir stöðuna. Meðal þess sem hefur komið til skoðunar er að gera loftárásir með svipuðum hætti og gert var í Kosovostríðinu. Sýrlandsstjórn hótar hins vegar hörðum viðbrögðum, grípi Vesturlönd til þess ráðs að gera árásir á Sýrland. Stjórnvöld í Bandaríkjunum, Bretlandi, Frakklandi og fleiri Vesturlöndum segja lítinn vafa leika á, að efnavopnaárásárás hafi verið gerð í síðustu viku, og flest þessi ríki reikna með því að Sýrlandsstjórn beri ábyrgð á henni. Að sögn hjálparstofnana voru um 3.600 manns fluttir á þrjú sjúkrahús í Damaskus og nágrenni á miðvikudag með einkenni eitrunar. Rúmlega 350 þeirra eru látnir. Sýrlandsstjórn þvertekur fyrir það að bera ábyrgð á árásinni, en sakar þess í stað uppreisnarmenn um voðaverkin. Sýrlandsstjórn segir að uppreisnarmenn með bækistöðvar í Jobar í úthverfi Damaskus hafi notað efnavopnin. Rússar hafa reynt að fá Sýrlandsstjórn til að samþykkja rannsókn, en telja að frekar strandi á uppreisnarmönnum sem ekki láta af bardögum til að tryggja efnavopnaeftirliti Sameinuðu þjóðanna örugga leið inn á vettvang árásarinnar. Sýrlenska ríkisfréttastofan Sana fullyrti svo í gær að Sameinuðu þjóðirnar hafi náð samningum við Sýrlandsstjórn um að sendinefndin fái leyfi til að rannsaka ummerki á vettvangi. Ekki er þó vitað hvenær leyfið fæst. Harðir bardagar hafa geisað í austanverðum úthverfum Damaskus undanfarna daga. Uppreisnarmenn hafa þessi hverfi að hluta á sínu valdi, en stjórnarherinn reynir að ná þeim úr höndum þeirra.
Mest lesið „Ég er ekki búinn að afskrifa hana“ Innlent „Maður vill trúa kúnnunum sínum“ Innlent „Fær þessar fréttir og við förum að gráta og allt ömurlegt“ Innlent Ákærður fyrir morðið á Widdecombe Erlent Hætta rannsókn á andláti á Hraunbúðum Innlent „Þessir helvítis útlendingar skilja ekki neitt“ Innlent Segir ótímabært að ræða undanþágur Innlent Sá sem féll í Ölfusá er látinn Innlent Atli Steinn biðst auðmjúkur afsökunar Innlent Frestun á frestun ofan í martraðarheimferð frá Gautaborg Innlent Fleiri fréttir Ákærður fyrir morðið á Widdecombe Tíu látnir eftir árásir Rússa á flutningaskip Skoða að auka umfang árása enn frekar Vill færa Bretum von á nýjan leik Auka þrýstinginn á Taívan verulega Ekkert lát á útbreiðslu ebólu í Austur-Kongó „Konungur norðursins“ sjöundi forsætisráðherrann á áratug Usha og JD Vance eignast sitt fjórða barn Hóta því að hleypa ekki einasta dropa af olíu eða gasi um sundið Fleiri en hundrað um borð í ferju sem hvolfdi Mamdani skoðar að láta handtaka Netanjahú Níu nauðgunarákærur bætast við langan lista Mörg hundruð manns hafa misst heimili sín í stórbrunanum í Noregi Háskólinn á Grænlandi fer ekki í samstarf við Bandaríkjamenn Ekki lengur ákærður fyrir tilraun til manndráps Búið að ráða niðurlögum eldsins Tate-bræður teknir fastir í Miami Tveir bandarískir hermenn látnir eftir árásir Írans Forseti Ungverjalands segir af sér Þriðja hitabylgjan nálgast: Hiti gæti náð 45 gráðum á Spáni Skógræktarstarfsmönnum haldið í gíslingu í hjólhýsi Fjölskyldur kvennanna í sárum eftir nýjar fréttir Maður fluttur með sjúkraflugi undir læknishendur eftir hákarlaárás Ríflega fimm þúsund látnir í kjölfar skjálftanna Árásarmaðurinn hafi sagst „ekki geta meir“ Ekki með tök á eldinum og slökkviliðsstjóri hljóp á sig Hótar tollum vegna skógareldanna Yfir hundrað íbúðir gjörskemmdar Segir erfitt að horfa upp á nágranna missa aleiguna Rúmlega 50 heimili horfin í stórbruna í Drammen Sjá meira