Erlent

Rafsígarettur líka krabbameinsvaldandi

Hanna Rún Sverrisdóttir skrifar
Rafsígarettur hafa notið vinsælda hjá reykingarfólki.
Rafsígarettur hafa notið vinsælda hjá reykingarfólki. mynd/afp
Rafsígarettur innihalda krabbameinsvaldandi efni. Ef marka má nýja rannsókn sem gerð var í Frakklandi geta rafsígarettur því haft sömu slæmu áhrifin og venjulegar sígarettur.

Rannsóknin var gerð eftir að yfirvöld í Frakklandi ákváðu nú í maí að banna reykingar á rafsígarettum á opinberum stöðum í Frakklandi.

Tímaritið 60 Millions Consommateurs hefur látið hafa eftir sér að rafsígaretturnar séu fjarri því að vera jafn skaðlausar og framleiðendur hafa haldið fram. Tímaritið lét gera þessa rannsókn og með því að skoða efnin kom í ljós að rafsígaretturnar innihalda krabbameinsvaldandi og eitruð efni.  

Rannsakendur gagnrýna einnig að engar varnir séu á sígarettunum fyrir börn og halda rannsakendur því fram að rafsígaretturnar innihaldi svo mikið magn af nikótíni að það gæti verið banvænt börnum.

Nánar má lesa um þetta í frétt Daily Mail.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×