Enski boltinn

Messan: Af hverju ertu að tala svona?

Það var slegið á létta strengi í Messunni á mánudagskvöldið en þá var farið yfir helstu atvik helgarinnar í enska boltanum.

Þeir félagarnir voru að ræða mörkin sem Gary Cahill og John Terry skoruðu fyrir Chelsea um helgina.

„Já, ég held að kaupin á Gary Cahill séu einhver flottustu kaup sem Andre Villas-Boas hefur gert í enskum fótbolta,“ sagði Hjörvar og uppskar mikinn hlátur félaga sinna í myndverinu.

„Af hverju ertu farinn að tala svona?“ sagði Guðmundur og hló. Sjón er sögu ríkari en innslagið má sjá hér fyrir ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×