Erlent

Ökumenn undir áhrifum fíkniefna

Ökumaður var handtekinn á Suðurnesjum í gær vegna gruns um að hann æki undir áhrifum fíkniefna. Sýnatökur á lögreglustöð staðfestu að hann hafði neytt kannabisefna, amfetamíns og metamfetamíns.

Sama máli gegndi um ökumann sem lögregla hafði afskipti af í fyrradag. Hann reyndist hafa neytt kannabis og amfetamíns. Þá stöðvaði lögregla þrjá ökumenn. Tveir þeirra reyndust vera sviptir ökuréttindum og hinn þriðji, sem stöðvaður var í nótt, var með útrunnin ökuréttindi.

Loks voru fjórir kærðir fyrir að leggja ólöglega, einn til viðbótar var ekki í bílbelti og sá sjötti mældist á 135 kílómetra hraða, þar sem hámarkshraði er 90 kílómetrar á klukkustund.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×