Erlent

Gordon Ramsey njósnar um unglingsdóttur sína

Hanna Rún Sverrisdóttir skrifar
Ramsay upplýsti um þetta í sjónvarpsviðtali við Jonathan Ross. Í viðtalinu lýsti hann því hvernig hann lét 13 ára son sinn koma myndavélinni fyrir og borgaði honum 20 pund fyrir verkið.
Ramsay upplýsti um þetta í sjónvarpsviðtali við Jonathan Ross. Í viðtalinu lýsti hann því hvernig hann lét 13 ára son sinn koma myndavélinni fyrir og borgaði honum 20 pund fyrir verkið.
Sjónvarpskokkurinn Gordon Ramsay segir að hann fylgist með 15 ára dóttur sinni, Megan, í herbergi hennar með hjálp falinnar myndvélar, sem hann lét son sinn koma fyrir í herberginu hennar. Þetta kemur fram á Daily Mail.

Ramsay upplýsti um þetta í sjónvarpsviðtali við Jonathan Ross. Í viðtalinu lýsti hann því hvernig hann lét 13 ára son sinn koma myndavélinni fyrir og borgaði honum 20 pund fyrir verkið.

Hann sagðist vilja fylgjast með því að dóttir sín ynni heimavinnuna. „Megan er hér í kvöld með kærastanum sínum,“ sagði Ramsey.„Þau hafa eytt miklum tíma saman í herberginu undanfarið, en við heimalærdóm.“

Megan vissi ekki af myndavélinni fyrr en að faðir hennar sagði frá því í viðtalinu og hefur henni eflaust brugðið við fregnirnar.

Þetta upptæki Ramsey er mjög umdeilt en ekki einsdæmi. Í fyrra fékk bandarískur háskólanemi, bann á það að foreldrar hennar fylgdust með henni með því að setja njósnabúnað í tækin hennar, eins og símann eða tölvuna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×