Enski boltinn

DJ Campbell handtekinn

Campbell í leik með Blackburn.
Campbell í leik með Blackburn.
Framherji Blackburn, DJ Campbell, er einn af sex mönnum sem hafa verið handteknir vegna meints veðmálasvindls í enska boltanum.

Blackburn staðfesti í dag að Campbell væri einn af mönnunum sex en orðrómur þess efnis fór í gang í gær.

The Sun birti í gær frétt um að hinn nígeríski varnarmaður Portsmouth, Sam Sodje, hefði þegið greiðslu upp á 13,5 milljónir króna fyrir að láta reka sig af velli á síðustu leiktíð.

Viðurkenndi hann verknaðinn við blaðamann sem hafði verið að vinna í þessum málum. Hann tjáði honum einnig að leikmenn væru til að í taka við greiðslum fyrir spjöld og bætti við að hann gæti haft áhrif á leiki á HM næsta sumar.

Campbell fékk gult spjald í leik gegn Ipswich í síðustu viku en það spjald er til skoðunar.

Þetta mál á örugglega eftir að vinda upp á sig næstu vikur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×