Segir byssukúlu sem fjarlægð var úr höfði Kennedy aldrei hafa verið sýnda Hanna Rún Sverrisdóttir skrifar 10. nóvember 2013 13:24
Hjúkrunarkonan Phyllis Hall, sem tók á móti John F. Kennedy á sjúkrahúsinu þangað sem hann var sendur eftir að hann var skotinn, segir að í höfði hans hafi verið byssukúla sem aldrei hafi verið sýnd. Daily Mail segir frá. Kennedy var á þessum tíma forseti Bandaríkjanna og hann var skotinn nokkrum skotum þar sem hann keyrði um í opnum bíl þar sem hann var í heimsókn í Dallas í Texas 22. nóvember 1963.Phyllis var 28 ára á þessum tíma og var í heimsókn hjá vini sínum á sjúkrahúsinu þegar Kennedy kom á staðinn. Hún segir að starfsmaður leyniþjónustunnar hafi dregið hana inn á skurðstofuna þar sem forsetinn lá. Hún lýsti kúlunni í viðtali hjá Sunday Mirror. Hún segir að kúlan hafi verið algjörlega óskemmd og ekkert lík þeim kúlum sem sýndar hafa verið sem sönnunargögn um morðið á Kennedy. Hún segist aldrei hafa séð annað eins en á þessum tíma hafi hún þegar haft talsverða reynslu af skotsárum. Hún segir að höfuð forsetans hafi verið illa farið vegna byssuskota en hún hafi strax rekið augun í þessa kúlu. Kúlan hafi hins vegar verið fjarlægð strax. Phyllis er 78 ára í dag. Hún segir að Jackie Kennedy, eiginkona forsetans, hafi gripið í hægri fótlegg forsetans þegar ljóst var að forsetinn hefði þetta ekki af. Hún vottaði forsetafrúnni samúð sína þegar ljóst var að forsetinn var látinn eftir 43 mínútna baráttu allt að 20 heilbrigðisstarfsmanna við að bjarga lífi hans. Hún sagði að Jakcie Kennedy, eiginkona forsetans, hafi horft fjarlægu augnaráði út í tómið. Phyllis hélt áfram að vinna á sjúkrahúsinu daginn sem Kennedy lést og hún sagði ekki einu sinni eiginmanni sínum hvað gerst hefði. Hún sagðist trúa þeim samsæriskenningum sem hafa verið vegna skotárásarinnar á Kennedy.
Mest lesið Sex handteknir og um verulegt magn sterkra efna að ræða Innlent „Ég reikna sterklega með því að karma banki upp á hjá þeim“ Innlent Hafi selt alls konar fíkniefni í gegnum „Kannabis Inc“ Innlent Tveir handteknu starfsmenn Eimskipa Innlent Góðkunningjar lögreglu grunaðir í stóru dópmáli Innlent Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Erlent Áfrýja ekki dómi vegna dauða dóttur þeirra Innlent Hyggst banna mánaðarlega hækkun leigu Innlent Unnar kjötvörur af matseðli í skólum: „Stranglega bannað að hafa pylsupartý“ Innlent Vilja verða áheyrnarfulltrúar og hækka laun sín gríðarlega Innlent Fleiri fréttir Fyrstu viðræður Ísraela og Líbana Kona forsætisráðherra Spánar ákærð fyrir spillingu Staðfesting úrslita dönsku kosninganna í uppnámi Stórt smyglmál til rannsóknar og eitrað fyrir gæludýrum í Kjós Lýsir yfir fyrsta sigri vélmenna á vígvellinum Svikarar við þjóðina verði dregnir til ábyrgðar Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Hezbollah mótmælir viðræðum og Íranir krefjast skaðabóta Mótmæla samruna Paramount og Warner Bros Öllum írönskum skipum útrýmt nálgist þau herkví Ótrúleg valdatíð Viktors Orban á enda Páfi hvergi banginn þrátt fyrir atyrði Trump Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Faðir Mary drottningar látinn Mette Frederiksen leitar yfir miðju Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Allra augu verða á Ungverjalandi í kvöld Íri réðst á bandaríska herflugvél með öxi Friðarviðræður runnu út í sandinn Komið að ögurstundu Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Trump „alveg sama“ um hvort samkomulag náist við Íran Augliti til auglitis í fyrsta sinn frá íslömsku byltingunni „Arc de Trump“ rísi í Washington Sjá meira