Enski boltinn

Vidic getur ekki spilað næstu vikur

Vidic gengur hér ringlaður af velli.
Vidic gengur hér ringlaður af velli.
Nemanja Vidic, fyrirliði Man. Utd, varð að fara af velli rétt fyrir leikhlé í leik Man. Utd og Arsenal um helgina. Hann hafði þá fengið heilahristing.

Hann lenti þá í samstuði við markvörð félagsins, David de Gea. Hann var í kjölfarið fluttur á spítala til rannsókna.

Hann hefur nú fengið að fara heim en þarf að taka því rólega næstu daga.

Hann mun ekki geta spilað aftur fyrr en í fyrsta lagi þann 24. nóvember en þá spilar Man. Utd gegn Aroni Einari Gunnarssyni og félögum í Cardiff.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×