Baldwin táraðist í réttarsalnum Haukur Viðar Alfreðsson skrifar 13. nóvember 2013 09:50 Baldwin fyrir utan réttarsalinn í gær. mynd/afp
Bandaríski leikarinn Alec Baldwin bar vitni gegn kanadískri konu í réttarhöldum í New York í gær. Konan, hin 41 árs gamla Genevieve Sabourin, er ákærð fyrir að sitja um leikarann og áreitni og hótanir af ýmsu tagi. Hún á yfir höfði sér allt að ársfangelsi verði hún sakfelld. Sabourin er gefið að sök að hafa sent leikaranum tugi tölvupósta þar sem hún ýmist hótaði honum eða sagðist vilja vera eiginkona hans. Þrátt fyrir ítrekaðar beiðnir leikarans um að láta sig í friði sat konan um heimili hans í New York og elti hann á röndum. Konan truflaði vitnisburði Baldwins og eiginkonu hans ítrekað og sakaði þau um lygar. Þá sagði hún að eiginkona Baldwins myndi fara til helvítis og hótaði dómarinn í kjölfarið að kæra Sabourin fyrir réttarspjöll. Lögmaður hennar fór þá með hana afsíðis til að reyna að róa hana niður. Sabourin bar ekki vitni í gær en lögmaður hennar lagði fram tölvupóstsamskipti á milli hennar og leikarans til að sýna fram á að þau hafi staðið yfir um langt skeið, og með vilja leikarans. Baldwin segist hafa svarað bréfum Sabourin af kurteisi við vin sinn, kvikmyndaframleiðandann Martin Bregman, sem átti í ástarsambandi við hana um tíma. „Ég átti aldrei frumkvæði að okkar samskiptum,“ sagði Baldwin í réttarsalnum, en hann virtist í miklu uppnámi og táraðist þegar Sabourin greip fram í fyrir honum með hrópum.Sabourin á yfir höfði sér allt að ársfangelsi verði hún sakfelld.mynd/afp
Mest lesið Sex handteknir og um verulegt magn sterkra efna að ræða Innlent Hafi selt alls konar fíkniefni í gegnum „Kannabis Inc“ Innlent „Ég reikna sterklega með því að karma banki upp á hjá þeim“ Innlent Góðkunningjar lögreglu grunaðir í stóru dópmáli Innlent Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Erlent Hyggst banna mánaðarlega hækkun leigu Innlent Áfrýja ekki dómi vegna dauða dóttur þeirra Innlent Svikarar við þjóðina verði dregnir til ábyrgðar Erlent Unnar kjötvörur af matseðli í skólum: „Stranglega bannað að hafa pylsupartý“ Innlent Vara dýraeigendur við: Gruna að eitrað hafi verið fyrir tveimur dýrum Innlent Fleiri fréttir Kona forsætisráðherra Spánar ákærð fyrir spillingu Staðfesting úrslita dönsku kosninganna í uppnámi Stórt smyglmál til rannsóknar og eitrað fyrir gæludýrum í Kjós Lýsir yfir fyrsta sigri vélmenna á vígvellinum Svikarar við þjóðina verði dregnir til ábyrgðar Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Hezbollah mótmælir viðræðum og Íranir krefjast skaðabóta Mótmæla samruna Paramount og Warner Bros Öllum írönskum skipum útrýmt nálgist þau herkví Ótrúleg valdatíð Viktors Orban á enda Páfi hvergi banginn þrátt fyrir atyrði Trump Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Faðir Mary drottningar látinn Mette Frederiksen leitar yfir miðju Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Allra augu verða á Ungverjalandi í kvöld Íri réðst á bandaríska herflugvél með öxi Friðarviðræður runnu út í sandinn Komið að ögurstundu Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Trump „alveg sama“ um hvort samkomulag náist við Íran Augliti til auglitis í fyrsta sinn frá íslömsku byltingunni „Arc de Trump“ rísi í Washington Fullkomin lending eftir sögulega ferð Sjá meira