Erlent

Íslendingur bíður spenntur eftir risaspeglum - "Uppátækjasamasti bær sem ég hef komið í“

Hanna Rún Sverrisdóttir skrifar
Steingrímur Jón Valgarðsson býr í Rjukan í Noregi.
Steingrímur Jón Valgarðsson býr í Rjukan í Noregi.
„Við búum beint við torgið þar sem speglarnir munu varpa sólargeislunum,“ segir Steingrímur Jón Valgarðsson, íbúi í Rjukan í Noregi. Yfirvöld þar í bæ hafa sett upp þrjá risastóra spegla í 450 metra hæð yfir bænum. Tilgangurinn er að endurvarpa sólarljósi yfir bæinn.

„Það er stappað af fólki í bænum núna,“ segir Steingrímur. „Það eru allir stærstu fjölmiðlar heims mættir og húsið okkar er á fréttamyndum um allan heim.“

Steingrímur flutti ásamt eiginkonu sinni, Berglindi Ósk Sigurðardóttur og tveimur börnum til Rjukan í júní á þessu ári.

Það var norskur verkfræðingur, Sam Eyde, sem fékk hugmyndina að speglunum fyrir um hundrað árum síðan. Steingrímur segir að Eyde verið álitinn galinn en. En núna skína sólargeislarnir beint á hann, eða styttuna af honum á torginu.

Steingrímur og fjölskyldan hans búa í húsinu sem er til vinstri á myndinni, þar hafa þau útsýni beint yfir torgið.mynd/afp
Bærinn er staðsettur í djúpum dal og Steingrímur segir að þarna sé engin sól í fjóra til fimm mánuði á ári. „Það er ótrúlega pirrandi þegar maður sér sólina langt upp í fjallinu en hún kemur ekki í bæinn. En í framtíðinni þá getur maður bara rölt út á torgið til að komast í sólina.“

Hann segir að þetta sé svipað og á Seyðisfirði á Íslandi, þar sem engin sól sé allan veturinn. „Þeir ættu kannski að íhuga að setja upp svona spegla þar, það gæti þó verið að þar sem fjöllin eru miklu hærri þar en hér að það gangi ekki upp.“

Steingrímur segir að aðgerðin við að koma speglunum upp hafi kostað um 100 milljónir íslenskra króna. Þegar þau fluttu í bæinn í júní voru þyrlur á ferðinni og fólk uppi í fjallinu, á fullu við að setja speglana upp. Hann segir speglana vera um 150 fermetra að stærð. Þetta séu risa speglar.

Mikið húllumhæ

„Það er mikið húllumhæ í kringum þetta, dóttir mín mun ásamt skólafélögum sínum syngja lagið Let the sunshine in, sem er lag úr Hárinu. Það er búið að setja strandblakvöll upp á torginu. Þetta er uppátækjasamasti bær sem ég hef komið í.“

Steingrímur segir að bæjarbúar fái frí í hádeginu í dag. Hann líkir þessu við að páfinn sé að koma í heimsókn í heimabæ sinn, slíkt sé tilstandið.

„Við erum með besta útsýnið í bænum og það verður svona 20 metra labb fyrir okkur að fara í sólina,“ segir Steingrímur.

Hér að neðan má sjá myndband frá hátíðarhöldunum í Rjukan í Noregi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×