Erlent

Pútín valdamestur allra

Guðsteinn Bjarnason skrifar
Vladimír Pútín Rússlandsforseti.
Vladimír Pútín Rússlandsforseti. Nordicphotos/AFP
Vladimír Pútín Rússlandsforseti er efstur á lista tímaritsins Forbes yfir valdamestu menn heims þetta árið. 

Barack Obama Bandaríkjaforseti er kominn niður í annað sætið, en Xi Jinping, leiðtogi Kína er í því þriðja og Frans páfi í því fjórða.

Í næstu sætum eru svo Angela Merkel Þýskalandskanslari, auðkýfingurinn Bill Gates og Ben Bernanke, seðlabankastjóri Bandaríkjanna.

Ákvörðun tímaritsins um að setja Pútín í efsta sætið ræðst af því að á meðan Obama hefur að mörgu leyti misst tökin á seinna kjörtímabili sínu í Bandaríkjunum hefur Pútín styrkt stöðu sína heima fyrir.

„Hver sem fylgist með taflmennskunni þetta árið um Sýrland og NSA-uppljóstranirnar gerir sér skýra grein fyrir því hvernig valdahlutföll einstaklinganna eru að breytast,” segir í rökstuðningi tímaritsins.

„Þessi fyrrverandi KGB-stórlax - sem ræður yfir kjarnorkuvæddum her, fastafulltrúa í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna og nokkrum af stærstu olíu- og gasauðlindum heims - er með heimild til að sitja annað kjörtímabil, sem gæti tryggt honum völd allt til ársins 2024.”




Fleiri fréttir

Sjá meira


×