Erlent

Vísar ásökunum Frakka á bug

James Clapper.
James Clapper. Mynd/AP
Yfirmaður leyniþjónustumála í Bandaríkjunum James Clapper, segir að ásakanir um að Bandaríkjamenn hafi hlerað sjötíu milljón símtöl í Frakklandi á einum mánuði séu rangar. Það var franska stórblaðið Le Monde sem sagði frá málinu í byrjun vikunnar og byggir á gögnum Edward Snowdens, uppljóstrarans sem nú er í Rússlandi.

Blaðið bætir um betur í dag og fullyrðir að Bandaríkjamenn hafi einnig hlerað franska diplómata og notað þær upplýsingar til þess aðhafa áhrif á atkvæðagreiðslur í mikilvægum málum hjá Sameinuðu þjóðunum. Clapper segir í yfirlýsingu sem birt var í gærkvöldi að upplýsingar blaðsins séu misvísandi og rangar í veigamiklum atriðum. Hann viðurkennir þó að Bandaríkin stundi njósnir, líkt og allar aðrar þjóðir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×