Erlent

Skutu þrettán ára strák sem var með leikfangabyssu

Byssan var eftirlíking AK-47 hríðskotabyssu.
Byssan var eftirlíking AK-47 hríðskotabyssu.
Lögreglumenn í Kalíforníu skutu á þriðjudag þrettán ára gamlan dreng til bana sem var með leikfangabyssu. Talsmaður lögreglunnar í Santa Rosa segir að lögreglan hafi skotið drenginn til bana eftir að hann neitaði að leggja frá sér byssuna, og segjast þeir hafa haldið hana vera alvöru hríðskotariffil.

Vitni að atburðinum segist hafa heyrt sjö skotum hleypt af og segir hann mjög skamma stund hafa liðið á milli þess sem hann heyrði í lögreglusírenu og uns skotunum var hleypt af.

Lögreglumennirnir sem um ræðir hafa verið settir af á meðan á rannsókn málsins stendur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×