Erlent

Efnavopnastofnunin hlýtur friðarverðlaun Nóbels

Kristján Hjálmarsson skrifar
Ahmet Uzumcu er framkvæmdastjóri OPCW.
Ahmet Uzumcu er framkvæmdastjóri OPCW.
Efnavopnastofnunin hlýtur friðarverðlaun Nóbels í ár fyrir starf sitt í Sýrlandi. 

OPCW er fjölþjóðleg stofnun sem hefur aðsetur í Haage, Hollandi. Stofnunin er í nánu samstarfi við Sameinuðu þjóðirnar og beitir sér fyrir eyðingu efnavopna á heimsvísu og því að samingum þess efnis sé framfylgt.

Aðildarríki eru 189 talsins og er Ísland þeirra á meðal. Í haust voru það aðeins Angóla, Egyptaland, Ísrael, Myanmar, Norður-Kórea, Suður-Súdan og Sýrland sem höfðu ekki skuldbundið sig til að framfylgja ákvörðunum OPCW. Sýrlendingar hafa nýverið samþykkt að eyða efnavopnum sínum og í dag er fjöldi starfsmanna OPCW að störfum í Sýrlandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×