Erlent

Tíu ára drengur handtekinn vegna andláts 79 ára manns

Haukur Viðar Alfreðsson skrifar
Maðurinn fannst látinn í Harehills-hverfinu í gær.
Maðurinn fannst látinn í Harehills-hverfinu í gær. mynd/google
Tíu ára drengur hefur verið handtekinn vegna láts 79 ára gamals manns í borginni Leeds í gær.

Maðurinn var fluttur á sjúkrahús með höfuðáverka og lést þar af sárum sínum skömmu síðar.

Lögregla hefur staðfest að tíu ára drengur sé í haldi vegna málsins og óskar eftir vitnum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×