Erlent

Skæður fellibylur í Japan

Gunnar Valþórsson skrifar
Flestir létust þegar hús þeirra hreinlega fuku út í veður og vind.
Flestir létust þegar hús þeirra hreinlega fuku út í veður og vind. AP
Að minnsta kosti þrettán fórust og um fimmtíu manns er saknað eftir að öflugur fellibylur gekk yfir eyjuna Izu Oshima suður af Tókíó, höfuðborg Japan.

Flestir létust þegar hús þeirra hreinlega fuku út í veður og vind og þá féllu stórar aurskriður á þorp á eynni. Í höfuðborginni Tókíó þurfti að aflýsa flugferðum og lestar hættu að ganga. Þá var öllum skólum lokað vegna veðursins sem var það versta í héraðinu í áratug.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×