Erlent

Navalní fer ekki í fangelsi

Guðsteinn Bjarnason skrifar
Navalní ásamt eiginkonu sinni í réttarsal í morgun.
Navalní ásamt eiginkonu sinni í réttarsal í morgun. Mynd/AP
Dómstóll í Kirov í Rússlandi hefur ákveðið að fangelsisdómurinn, sem Alexei Navalní hlaut í sumar, verði skilorðsbundinn.

Navalní er þekktur bloggari og einn helsti leiðtogi stjórnarandstöðunnar gegn Vladimír Pútín forseta. 

Navalní var dæmdur í fimm ára fangelsi í júlí síðastliðnum fyrir fjárdrátt, en látinn laus úr fangelsi daginn eftir. Borgarstjórakosningar í Moskvu voru haldnar skömmu síðar og fékk Navalní þar 27 prósent atkvæða.

Stjórn Pútíns hefur, eins og oft áður, verið sökuð um að hafa haft áhrif á dómstólana, bæði þegar hann var dæmdur í fangelsi og eins nú þegar ákveðið er að skilorðsbinda dóminn. 








Fleiri fréttir

Sjá meira


×