Þörf fyrir mataraðstoð stóraukist í Bretlandi Guðsteinn Bjarnason skrifar 16. október 2013 10:30 Sjálfboðaliðar útbúa matarpakka handa fólki í fjárhagsvanda. Mynd/AP
Síðasta hálfa árið hafa nærri 356 þúsund manns hafa þurft á matargjöfum að halda í Bretlandi frá The Russel Trust, kristilegum samtökum sem sinna sjálfboðastarfi. Þetta er nokkru fleira fólk en þurfti á mataraðstoð að halda allt árið þar á undan. Chris Mould, framkvæmdastjóri samtakanna, hvetur stjórn David Camerons til að láta rannsaka orsakir þess, að fólk sveltur í Bretlandi. Hann segir ástandið eiga eftir að versna í vetur. „Þetta vekur áhyggjur,” hefur fréttastofan AP eftir Mould. „Þetta ástand er ekkert að fara. Það fer versnandi.” Mould segir að kaupmáttur fólks hafi minnkað töluvert frá því kreppan hófst árin 2007 til 2008. Brýnustu nauðsynjar hafi hækkað í verði en tekjur ekki vaxið að sama skapi. Nú sé svo komið að margir þurfi að velja á milli þess í vetur hvort mikilvægara sé að verja takmörkuðu fé sínu til að hita húsnæðið eða til að kaupa sér mat. „Fólk er byrjað að skila mat sem þarf að elda vegna þess að það hefur ekki efni á því að nota rafmagnið,” segir Mould. Hann segir að sparnaðaraðgerðir ríkisstjórnar Íhaldsflokksins og Frjálslyndra síðustu ár hafi orðið til þess að staða hinna verst settu hafi versnað enn. George Osborne fjármálaráðherra hefur viðurkennt að aðhaldsaðgerðir hafi reynst fólki erfiðar, en segir þær nauðsynlegar til skamms tíma. Efnahagsbatinn hafi hins vegar látið bíða lengur eftir sér en vonast var til.
Mest lesið Úkraínumenn gáfu Kananum á baukinn Erlent Tókst á við umdeilda rabbínann: „Þú ert hættulegur maður“ Innlent Íbúar flúðu undan tónlistarhátíð Bjarkar Innlent Komu í veg fyrir launmorð á Bandaríkjamanni í Varsjá Erlent Steingrímur segir nei vegna reynslu af fyrri aðildarviðræðum Innlent Rafflugvél sem gæti hentað Íslandi flýgur í fyrsta sinn Innlent Mangione sagður ætla að játa Erlent Forskot Já-hliðarinnar mælist minna Innlent Hafa áhyggjur af geðheilsu þúsunda sjóliða Erlent Sé verið að senda röng skilaboð til „kaldrifjaðra morðingja“ Innlent Fleiri fréttir Komu í veg fyrir launmorð á Bandaríkjamanni í Varsjá Hafa áhyggjur af geðheilsu þúsunda sjóliða Úkraínumenn gáfu Kananum á baukinn Mangione sagður ætla að játa Mannskæð sprenging í stærstu höfn Evrópu Sagður hafa setið fyrir foreldrum sínum áður en hann myrti þau Senda inn liðsauka þar sem landtökumenn sitja um heimili Palestínumanna Handtóku og ákærðu baráttukonu gegn Kú Klúx Klan Stefna Trump vegna sölu á samfélagsmiðlafærslum hans Olíuborunum á Grænlandi frestað eftir viðræður við stjórnvöld Leavitt hættir hjá Trump ICE-liðar fá rafmagnshanska Létu sprengjum rigna á rússneska flotastöð við Svartahaf Ófrjósemi: Gervigreindin notuð til að finna sáðfrumur í geldsæði Farage etur kappi við grínara og aðra furðufugla Blaðamenn og aðrir farþegar notaðir sem tálbeita? Þúsunda saknað og tíminn að renna út Stríðsfangar barðir og beittir kynferðislegu ofbeldi Pútín vildi ekkert fyrir Bandaríkjamann í rússnesku fangelsi Norskir nei-sinnar bæta við sig Ætla að senda alla sem brutust inn í Ceuta til baka Vill aðskilja bólusetningar gegn mislingum, hettusótt og rauðum hundum Efnt til æfinga í Taívan fyrir umfangsmikið rof á fjarskiptum Assad dæmdur til dauða í heimalandinu Réttað yfir fyrrverandi glæpaforingja vegna morðsins á Tupac Flaug hvorki með gömlu né nýju Air Force One Dregur enn frekar úr líkum á samningi með skaðabótakröfu Fylgdust með rússneskum njósnara gefa útsendara gjöf Tala látinna komin yfir hundrað Brutu reglur þegar þau tilkynntu óvart andlát konungsins Sjá meira