Erlent

Sex grískir þingmenn sviptir þinghelgi

Guðsteinn Bjarnason skrifar
Þingmenn Gullinnar dögunar mæta til þingsetningar 7. október síðastliðinn.
Þingmenn Gullinnar dögunar mæta til þingsetningar 7. október síðastliðinn. Mynd/AP
Gríska þingið samþykkti í morgun að svipta sex þingmenn Gullinnar dögunar þinghelgi svo hægt verði að sækja þá til saka.

Nokkrir helstu leiðtogar flokksins voru handteknir í síðasta mánuði, sakaðir um að reka flokkinn eins og glæpasamtök. Morð á þekktum tónlistarmanni, sem hafði gagnrýnt útlendingahatur Gullinnar dögunar, varð til þess að stjórnvöld réðust til atlögu gegn flokknum.

Gullin dögun er flokkur harðskeyttra þjóðernissinna sem náðu töluverðu fylgi í þingkosningum á síðasta ári, þegar skuldakreppan hafði komið harkalega niður á almenningi í Grikklandi.

Flokkurinn hefur að hætti nýnasista barist heiftarlega gegn útlendingum og óspart höfðað til ótta almennings.

Þingmenn flokksins gengu úr þingsal áður en atkvæðagreiðslan hófst í morgun, en mikill meirihluti þingmanna samþykktu tillöguna um að svipta þá þinghelgi.












Fleiri fréttir

Sjá meira


×