Norska knattspyrnusambandið í mál vegna útsendingarinnar á leiknum Hanna Rún Sverrisdóttir skrifar 17. október 2013 07:15 Leikurinn á þriðjudag átti að vera sýndur á aðalrás TV2 en þar sem Norðmenn voru dottnir úr leik í undankeppni HM, ákváðu forsvarsmenn sjónvarpsstöðvarinnar að sýna leikinn á hliðarrásinni TV2 Zebra. mynd/Vilhelm Gunnarsson
Norska knattspyrnusambandið ætlar í mál við sjónvarpsstöðina TV2 vegna þess að forsvarsmenn stöðvarinnar, ákváðu að sýna leik Noregs og Íslands í undankeppni heimsmeistaramótsins, á annarri stöð en samið hafði verið um. Þetta kemur fram í norska blaðinu Aftenposten. Leikurinn á þriðjudag átti að vera sýndur á aðalrás TV2 en þar sem Norðmenn voru dottnir úr leik í undankeppni HM, ákváðu forsvarsmenn sjónvarpsstöðvarinnar að sýna leikinn á hliðarrásinni TV2 Zebra. Þótt 364 þúsund manns hafi horft á leikinn telur norska knattspyrnusambandið að samningar hafi verið brotnir og ætla því í mál. Áhorfið á leikinn var mun meira en búist hafði verið við og meira en á aðalrásina þetta kvöldið, en um 281 þúsund horfðu á þá rás. „Við munum fylgja þessu eftir,“ segir Svein Graff varaforseti Norska knattspyrnusambandsins. Aðspurður hvort þeir myndu fara fram á bætur svarar hann því að þeir ætli að ræða við forsvarsmenn TV2 og síðan fara með málið fyrir dóm. „Það er mjög alvarlegt að okkar aðalsamstarfsaðili brjóti svona kristaltærar reglur og samning sem þeir vita alveg út á hvað gengur,“ segir Svein Graff. Yfirmaður fótboltadeildar TV2, Elaine Jansen Hagen, sagði í gærmorgun að hún hefði ekkert heyrt frá knattspyrnusambandinu en þau muni taka á því máli þegar þar að kemur.
Mest lesið Yfir hundrað íbúðir gjörskemmdar Erlent Hótar tollum vegna skógareldanna Erlent „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Segir erfitt að horfa upp á nágranna missa aleiguna Erlent Mótorhjól og bíll skullu saman Innlent Níræður maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Innlent Hæð langt suður í hafi dælir hlýju lofti til landsins Veður Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Fleiri fréttir Hótar tollum vegna skógareldanna Yfir hundrað íbúðir gjörskemmdar Segir erfitt að horfa upp á nágranna missa aleiguna Rúmlega 50 heimili horfin í stórbruna í Drammen Flóka saknað og grunur um þjófnað Skotárás við Álaborg Boðar aukin ríkisafskipti og heitir því að verða áfram „maður fólksins“ Mótmælt í Kænugarði vegna uppsagnar varnarmálaráðherrans Reykur frá skógareldum í Kanada veldur vandræðum víða Gerðu árásir á Íran sjötta daginn í röð Trump sáir efasemdafræjum í aðdraganda þingkosninga Gróðureldar loga stjórnlaust og fólki ráðlagt að halda sig innandyra Fimmtíu og sjö með stöðu sakbornings vegna vanrækslu brúar R. Kelly biðlar til Trump um að milda fangelsisdóminn Testósterónmagn kannað hjá öllum hermönnum 30 ára og eldri Gefa upp dánarorsökina vegna „ónákvæmra og rangra frétta“ af andlátinu Bandaríkjamenn skjóta á skip sem hugðist leggja við bryggju á Kharg-eyju Tvö þúsund smitaðir og rúmlega sjö hundruð látnir Sex létust í árásum Rússa í nótt Fyrrum forsætisráðherra Noregs vill þjóðaratkvæði um aðildarviðræður Segja gervigreindina hafa valið þá sem sagt var upp og saka Meta um mismunun Carroll fær loksins miskabæturnar frá Trump Þurfa að hafa lokið herskyldu til að fá vernd innan ESB Gus sleginn á 6,3 milljarða króna Eldri unglingum bannað að fara á samfélagsmiðla á nóttunni Um 7.000 manns taldir smitaðir af svæsinni niðurgangspest Trump hótar árásum á orkuver og Íranir að stöðva alla olíuflutninga Sex létust í eldsvoða í Brussel Hættur við innheimtu tolls á Hormússundi Morðið á Ann Widdecombe var „markviss árás“ Sjá meira