Erlent

Stofnandi eBay stofnar nýjan fjölmiðil

Boði Logason skrifar
Glenn Greenwald
Glenn Greenwald
Bandaríski blaðamaðurinn Glenn Greenwald tekur til starfa hjá nýjum fjölmiðli í eigu franska milljarðamæringsins Pierre Omidyar, en sá stofnaði sölusíðun eBay.

Greenwald sagði starfi sínu lausu hjá breska blaðinu The Guardian í síðustu viku nokkrum mánuðum eftir að hann birti leynigögn frá bandaríska uppljóstraranum Edward Snowden.

Franski milljarðamæringurinn segir í yfirlýsingu að hann vilji styðja við bakið á sjálfstætt starfandi rannsóknarblaðamönnum að segja frá sannleikanum. 

David Cameron, forsætisráðherra Bretlands, gagnrýndi The Guardian fyrir að birta skjölin frá Snowden og sagði að þau stefndu öryggi landsins í hættu. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×