Húskettir leggja undir sig japanska eyju Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar 19. október 2013 22:01 Kettirnir fjölga sér hratt. Myndir/Kolmetoista
Fleiri kettir en menn búa á litlu eyjunni Tashirojima sem liggur austan við Japan. Þar búa aðeins um hundrað manns sem flestallir eru yfir sjötíu ára gamlir. Fyrir rúmlega hálfri öld bjuggu þó yfir þúsund íbúar á eyjunni og margir þeirra áttu ketti til þess að halda í skefjum fjölda músa. Á sama tíma og íbúum fækkaði fjölgaði köttunum óðum. Það mætti nú segja að þetta sé eyja sem stjórnað er af köttum. Þannig hefur þróunin verið svo lengi að heill menningarheimur hefur skapast í kringum kattafjöldann. Til dæmis eru reglur á eyjunni sem banna hundahald, það er kattahof og nokkrar kattalaga byggingar. Að auki heimsækir dýralæknir eyjuna af og til í því skyni að tryggja það að kettirnir haldist heilbrigðir. Önnur eyja varð nýverið sömu örlögum að bráð en sú liggur sunnan við Japan og kallast Aoshima. Þar búa aðeins 15 einstaklingar sem eru allir háaldraðir. Kettirnir þar fjölga sér hratt, ólíkt íbúunum, og hafa gert eyjuna að heimili sínu þrátt fyrir að hafa verið eigendalausir í margar kynslóðir. Myndirnar sem fylgja fréttinni voru settar á Twitter af notandanum Kolmetoista og hafa þær orsakað það að eyjurnar eru skyndilega farnar að draga að sér ferðamenn.
Mest lesið Úkraínumenn gáfu Kananum á baukinn Erlent Tókst á við umdeilda rabbínann: „Þú ert hættulegur maður“ Innlent Íbúar flúðu undan tónlistarhátíð Bjarkar Innlent Komu í veg fyrir launmorð á Bandaríkjamanni í Varsjá Erlent Steingrímur segir nei vegna reynslu af fyrri aðildarviðræðum Innlent Rafflugvél sem gæti hentað Íslandi flýgur í fyrsta sinn Innlent Mangione sagður ætla að játa Erlent Forskot Já-hliðarinnar mælist minna Innlent Hafa áhyggjur af geðheilsu þúsunda sjóliða Erlent Sé verið að senda röng skilaboð til „kaldrifjaðra morðingja“ Innlent Fleiri fréttir Komu í veg fyrir launmorð á Bandaríkjamanni í Varsjá Hafa áhyggjur af geðheilsu þúsunda sjóliða Úkraínumenn gáfu Kananum á baukinn Mangione sagður ætla að játa Mannskæð sprenging í stærstu höfn Evrópu Sagður hafa setið fyrir foreldrum sínum áður en hann myrti þau Senda inn liðsauka þar sem landtökumenn sitja um heimili Palestínumanna Handtóku og ákærðu baráttukonu gegn Kú Klúx Klan Stefna Trump vegna sölu á samfélagsmiðlafærslum hans Olíuborunum á Grænlandi frestað eftir viðræður við stjórnvöld Leavitt hættir hjá Trump ICE-liðar fá rafmagnshanska Létu sprengjum rigna á rússneska flotastöð við Svartahaf Ófrjósemi: Gervigreindin notuð til að finna sáðfrumur í geldsæði Farage etur kappi við grínara og aðra furðufugla Blaðamenn og aðrir farþegar notaðir sem tálbeita? Þúsunda saknað og tíminn að renna út Stríðsfangar barðir og beittir kynferðislegu ofbeldi Pútín vildi ekkert fyrir Bandaríkjamann í rússnesku fangelsi Norskir nei-sinnar bæta við sig Ætla að senda alla sem brutust inn í Ceuta til baka Vill aðskilja bólusetningar gegn mislingum, hettusótt og rauðum hundum Efnt til æfinga í Taívan fyrir umfangsmikið rof á fjarskiptum Assad dæmdur til dauða í heimalandinu Réttað yfir fyrrverandi glæpaforingja vegna morðsins á Tupac Flaug hvorki með gömlu né nýju Air Force One Dregur enn frekar úr líkum á samningi með skaðabótakröfu Fylgdust með rússneskum njósnara gefa útsendara gjöf Tala látinna komin yfir hundrað Brutu reglur þegar þau tilkynntu óvart andlát konungsins Sjá meira