Erlent

Bjargað úr klóm mannræningja

Mexíkó
Mexíkó
Sjötíu og þremur, sem talið er að hafi verið rænt og í haldi, var bjargað í norðanverðu Mexíkó, í grennd við bæinn Reynosa.

Lögregla elti hina meintu mannræningja að húsi nokkru og heyrði þaðan örvæntingarfull hróp á hjálp. Meðal hinna meintu fórnarlamba eru 37 Mexíkóar, 19 frá Honduras, 14 frá Guatemala og þrír frá El Salvador, segir í tilkynningu frá mexíkóskum yfirvöldum.

Þeirra á meðal voru konur og unglingar, sem sumir hverjir höfðu verið misnotaðir kynferðislega.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×