Múslimar á flótta undan búddamunkum Guðsteinn Bjarnason skrifar 2. október 2013 10:30 Múslimar í felum í þorpinu Thabyu Chi í Búrma. Nordicphotos/AFP
Skelfingu lostnir múslimar í Búrma hafa flúið út í skóg eftir ofbeldishrinu í gær, þegar búddamunkar og fylgjendur þeirra gengu berserksgang í þorpinu Thandwe. Um 700 manns réðust inn í þorpið, sveiflandi sveðjum og settu eld að húsum. Múgurinn kveikti í tugum húsa og myrti 94 ára gamla konu í þorpinu, sem er í Rakhine-héraði í suðvestanverðu landinu. Þessi nýja ofbeldishrina er í beinu framhaldi af svipuðum atburðum á síðasta ári. Hópur róttækra búddamunka hefur alið á ótta og hatri gagnvart múslimum í suðvestanverðu landinu, með þeim afleiðingum að reglulega sýður upp úr. Mannréttindasamtök segja stjórnvöld hafa lítið sem ekkert gert til að draga úr ofbeldinu og hatursáróðrinum. Munkarnir hamra á því að menningu og siðum búddista stafi ógn af múslimum, sem eru um það bil fjögur prósent íbúa landsins. Thein Sein forseti hélt til Rakhine-héraðs í gær, fljótlega eftir árásina á þorpið. Hann fordæmdi ofbeldið og hvetur til friðar. Hann segir átök milli þjóðernis- og trúarhópa í landinu, og þá ekki eingöngu milli búddista og múslima, grafa undan lýðræðisumbótum og sverta ímynd landsins á alþjóðavettvangi. Hann er nú á leiðinni til Thandwe, þorpsins sem varð fyrir árásinni á þriðjudag. Spenna ríkir þar enn í lofti, en allt er með kyrrum kjörum. Fjölmennt lið hers og lögreglu er þar til að sjá til þess að heimsókn forsetans gangi vel fyrir sig. Átök hafa hins vegar verið í öðrum þorpum í nágreinninu og ekki að sjá að öryggissveitir hafi reynt að grípa þar inn í.
Mest lesið Sjötugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Innlent Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Innlent Hótar tollum vegna skógareldanna Erlent Slasaðist alvarlega við heyskap Innlent „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Innlent Yfir hundrað íbúðir gjörskemmdar Erlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Ekki með tök á eldinum og slökkviliðsstjóri hljóp á sig Erlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Árásarmaðurinn hafi sagst „ekki geta meir“ Erlent Fleiri fréttir Ríflega fimm þúsund látnir í kjölfar skjálftanna Árásarmaðurinn hafi sagst „ekki geta meir“ Ekki með tök á eldinum og slökkviliðsstjóri hljóp á sig Hótar tollum vegna skógareldanna Yfir hundrað íbúðir gjörskemmdar Segir erfitt að horfa upp á nágranna missa aleiguna Rúmlega 50 heimili horfin í stórbruna í Drammen Flóka saknað og grunur um þjófnað Skotárás við Álaborg Boðar aukin ríkisafskipti og heitir því að verða áfram „maður fólksins“ Mótmælt í Kænugarði vegna uppsagnar varnarmálaráðherrans Reykur frá skógareldum í Kanada veldur vandræðum víða Gerðu árásir á Íran sjötta daginn í röð Trump sáir efasemdafræjum í aðdraganda þingkosninga Gróðureldar loga stjórnlaust og fólki ráðlagt að halda sig innandyra Fimmtíu og sjö með stöðu sakbornings vegna vanrækslu brúar R. Kelly biðlar til Trump um að milda fangelsisdóminn Testósterónmagn kannað hjá öllum hermönnum 30 ára og eldri Gefa upp dánarorsökina vegna „ónákvæmra og rangra frétta“ af andlátinu Bandaríkjamenn skjóta á skip sem hugðist leggja við bryggju á Kharg-eyju Tvö þúsund smitaðir og rúmlega sjö hundruð látnir Sex létust í árásum Rússa í nótt Fyrrum forsætisráðherra Noregs vill þjóðaratkvæði um aðildarviðræður Segja gervigreindina hafa valið þá sem sagt var upp og saka Meta um mismunun Carroll fær loksins miskabæturnar frá Trump Þurfa að hafa lokið herskyldu til að fá vernd innan ESB Gus sleginn á 6,3 milljarða króna Eldri unglingum bannað að fara á samfélagsmiðla á nóttunni Um 7.000 manns taldir smitaðir af svæsinni niðurgangspest Trump hótar árásum á orkuver og Íranir að stöðva alla olíuflutninga Sjá meira