Erlent

Kona skotin í Washington

Gunnar Valþórsson skrifar
Öryggissveitir brjótast inn á heimili konunnar.
Öryggissveitir brjótast inn á heimili konunnar. AP
Kona sem ók á öryggishlið fyrir utan Hvíta húsið í gærdag og ók síðan á brott þegar lögreglan reyndi að nálgast hana var skotin til bana nálægt þinghúsinu í Washington.

Að sögn lögreglu var konan óvopnuð og öll skotin voru af hálfu lögreglunnar. Einn lögreglumaður slasaðist í eftirförinni. Eins árs gamalt barn var í bílnum með konunni og slapp það ómeitt og er nú í umsjá yfirvalda. Ekki er vitað hvað konunni gekk til með háttarlagi sínu en lögregla telur ekki að um tilraun til hryðjuverks hafi verið að ræða.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×