Erlent

Mannskæður vespufaraldur í Kína

Gunnar Valþórsson skrifar
Þær eru ófrýnilegar vespurnar í Kína og hættulegar eftir því.
Þær eru ófrýnilegar vespurnar í Kína og hættulegar eftir því.
Risastórar vespur hafa orðið 42 að bana og tæplega tvö þúsund hafa slasast í árásum þeirra síðustu vikur í norðvestanverðu Kína.

Um faraldur er að ræða og standa yfirvöld nú í ströngu við að útrýma búum flugnanna. Þá hefur íbúum á svæðinu verið fyrirskipað að ganga ekki um í stuttermabolum eða stuttbuxum og er þeim ráðið frá því að reyna að eyða búunum upp á eigin spítur.

Mökunartími flugnanna stendur nú sem hæst og þá eru þær óvenju árásargjarnar. Stungur þeirra geta valdið heiftarlegum ofnæmisviðbrögðum og leitt til þess að mikilvæg lífffæri hætta starfsemi sinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×