Erlent

Þrettán skotnir á körfuboltavelli

Boði Logason skrifar
Lögreglumenn á vettvangi í gærkvöldi.
Lögreglumenn á vettvangi í gærkvöldi. mynd/afp
Þriggja ára gamalt barn var á meðal þeirra sem varð fyrir skoti í skotárás í suðurhluta Chicago-borgar seint í gærkvöldi.

Samkvæmt fréttavef CNN særðust þrettán manns í árásinni, sem var gerð á körfuboltavelli, en hún er talin tengjast erjum á milli gengja. Fjórir eru í lífshættu.

Enginn hefur verið handtekinn. Yfir 500 morð voru framan í Chicago á síðasta ári, sem er hæsta hlutfall allra borga í Bandaríkjunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×