Erlent

Miley í gegnsæju með Kardashian systrum

Miley Cyrus virðist hafa fundið sér nýjar vinkonur á iHeartRadio tónlistarhátíðinni í nótt.

Á vef Daily Mail segir frá því að Kardashian systurnar Kourtney og Khloe hafi ásamt hálfsystrum sínum Kendall og Kylie Jenner hitt Miley baksviðs á tónleikunum. Þær létu vel af henni þó fataval fyrrum Disney stjörnunnar hafi verið frekar djarft.

Ekki er vitað hvað stúlkurnar spjölluðu um en eins og Vísir greindi frá fyrr í vikunni hafa Miley Cyrus og Liam Hemsworth slitið trúlofun sinni og því er ekki ólíklegt að það hafi borið á góma.

Miley hefur verið gagnrýnd mikið uppá síðkastið vegna sérstakrar hegðunar sinnar en hún lætur slíkt ekki á sig fá.

„Ég hlusta ekki á neikvæða gagnrýni. Ég hef séð hvernig þetta spilast út, hversu oft höfum við séð þetta ganga upp í popp tónlist,“ sagði Miley og vísaði til þeirrar gagnrýni sem hún hefur hlotið eftir VMA tónlistarhátíðina sem haldin var á dögunum.







Fleiri fréttir

Sjá meira


×