Erlent

Örn svífur með GoPro-myndavél á bakinu

Haukur Viðar Alfreðsson skrifar
Myndband tekið frá sjónarhorni arnar á flugi hefur vakið athygli og er nú vinsælasta myndbandið á vefsíðunni Reddit.

Örninn svífur um Chamonix-dalinn í Frakklandi með GoPro-myndavél á bakinu og líður áhorfandanum nánast eins og hann sé sjálfur á flugi á arnarbaki.

Ekki er vitað hvaðan myndbandið kemur og í athugasemdakerfinu segjast sumir telja að það sé falsað. Það er þó einkar raunverulegt að sjá, en sjón er sögu ríkari.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×