Erlent

Fjölbýlishús hrundi í Múmbaí

Frá vettvangi í morgun
Frá vettvangi í morgun
Að minnsta kosti tuttugu og fimm eru fastir undir rústum byggingar sem hrundi til grunna í Múmbaí á Indlandi í morgun.

Fjölmargir björgunarsveitarmenn eru nú á staðnum en engar fregnir hafa borist af mannfalli.

Ekki er fátítt að hús hrynji á Indlandi. Í apríl fórust yfir 70 þegar verksmiðja hrundi til grunna í borginni, og í júní fórust tíu, þar af fimm börn, þegar þriggja hæða blokk hrundi.  




Fleiri fréttir

Sjá meira


×