Erlent

Björguðu manni sem féll á lestarteina

Jón Júlíus Karlsson skrifar
Manni var bjargað er féll niður á lestarteina í neðanjarðarlestarstöð í Boston. Maður gekk fram af brúninni og féll fram fyrir sig á teinana og missti í kjölfarið meðvitund. Þrír aðilar stukku niður á lestarteinana til að bjarga manninum og náðu að lyfta honum upp af lestarteinunum.

Maðurinn sem féll fram fyrir sig viðurkenndi að hann hafi drukkið áfengi kvöldið sem atvikið átti sér stað. Strax var tilkynnt um að maður væri á lestarteinunum og því voru lestir stöðvaðar sem áttu leið sína í gegnum stöðina.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×