Erlent

Skutu sofandi ungmenni í rúmum sínum

Gunnar Valþórsson skrifar
Óeirðir í Lagos í Nígeríu. Myndin tengist ekki fréttinni beint.
Óeirðir í Lagos í Nígeríu. Myndin tengist ekki fréttinni beint. Mynd úr safni.
Allt að fimmtíu stúdentar voru myrtir í landbúnaðarskóla í Norðaustur Nígeríu í dag.

Talið er að íslamskir öfgamenn hafi verið þarna að verki en fréttastofa BBC greinir frá því að ódæðismennirnir hafi skotið ungmennin þar sem þau lágu sofandi í rúmum sínum.

Neyðarástand hefur ríkt í þessum hluta landsins síðustu misserin en öfgasamtökin Boko Haram eru sterk á svæðinu en þau hafa á stefnuskránni að koma nígerískum stjórnvöldum frá og setja á fót Íslamskt ríki.







Fleiri fréttir

Sjá meira


×