Erlent

Loftslagsbreytingar banamein loðfílsins

Ofveiðar mannsins varð ekki til þess að loðfíllinn dó út.
Ofveiðar mannsins varð ekki til þess að loðfíllinn dó út.
Vísindamenn segjast nú hafa fundið sannanir fyrir því að loftlagsbreytingar hafi verið helsta orsökin fyrir því að loðfíllinn mikilfenglegi dó út á jörðinni og að veiðar mannfólksins á dýrinu hafi haft lítil áhrif, ólíkt því sem áður hefur verið talið.

DNA greining sýnir að dýrunum fór að fækka mun fyrr en áður hefur verið talið og helst fækkunin í hendur við breytingar á loftslagi jarðar. Ísöldin, sem var í hámarki fyrir 20 þúsund árum, hafi þarna riðið baggamuninn og gert endanlega út um tegundina.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×