Deilt um orðalag í ályktun um Sýrland Guðsteinn Bjarnason skrifar 11. september 2013 16:15 Barack Obama Bandaríkjaforseti. Mynd/AP
Rússar, Bandaríkin og fleiri ríki deila nú um orðalag í væntanlegri ályktunartillögu, sem lögð verður fram í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna um efnavopnanotkun Sýrlendinga. Barack Obama Bandaríkjaforseti hefur frestað atkvæðagreiðslu í þinginu um heimild til hernaðar gegn Sýrlandsstjórn. Þess í stað ætlar hann að láta reyna á samningaleiðina, en segist ætla að hafa herinn áfram í viðbragðsstöðu. Sýrlandsstjórn féllst í gær á hugmyndir Rússa um að efnavopnin í Sýrlandi yrðu sett undir alþjóðlegt eftirlit. Jafnframt sögðust Sýrlendingar ætla að undirrita alþjóðasamning um bann við efnavopnum, sem flest aðildarríki Sameinuðu þjóðanna hafa fyrir löngu gerst aðilar að. Þar með hafa Sýrlendingar í raun fallist á að efnavopnunum verði eytt. Bandaríkjamenn hafa þó áhyggjur af því að Sýrlandsstjórn hafi þarna einungis gripið tækifæri til þess að tefja málin, og vilja að ályktun Sameinuðu þjóðanna tryggi að Sýrlendingar efni þessi loforð. Rússar, sem hafa neitunarvald í öryggisráðinu, hafa hafnað hugmyndum Frakka og Bandaríkjamanna um harðorða ályktun, sem tryggði að standi Sýrlendingar ekki við loforðin muni það hafa í för með sér „mjög alvarlegar afleiðingar.” Sýrlensk stjórnvöld hafa hins vegar strax í dag dregið að nokkru í land. Þannig sagði Ali Haidar, ráðherra í stjórn Sýrlands, í viðtali við AP fréttastofuna að Sýrlendingar væru því aðeins reiðubúnir til að undirrita samninginn, ef það yrði ekki gert undir þrýstingi frá erlendum ríkjum. Hann sagði efnavopn vera „kjarnorkuvopn hinna fátæku” og Sýrlendingar hefðu komið sér þeim upp fyrst og fremst til að tryggja hernaðarlegt jafnvægi gagnvart Ísrael, „óvini sem við höfum verið að berjast við í sextíu ár.” Allt stefnir því í erfiðar og flóknar samningaviðræður milli þessara ríkja.
Mest lesið „Þetta er bara toppurinn á ísjakanum“ Innlent Sjötugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Innlent Nálægt því að útrýma moskítóflugu á Suðurlandi Innlent Slasaðist alvarlega við heyskap Innlent Drykkurinn komi úr flösku ráðherra Innlent Skógræktarstarfsmönnum haldið í gíslingu í hjólhýsi Erlent Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Innlent Lögregla klippti á plöturnar Innlent Fjölskyldur kvennanna í sárum eftir nýjar fréttir Erlent Hótar tollum vegna skógareldanna Erlent Fleiri fréttir Þriðja hitabylgjan nálgast: Hiti gæti náð 45 gráðum á Spáni Skógræktarstarfsmönnum haldið í gíslingu í hjólhýsi Fjölskyldur kvennanna í sárum eftir nýjar fréttir Maður fluttur með sjúkraflugi undir læknishendur eftir hákarlaárás Ríflega fimm þúsund látnir í kjölfar skjálftanna Árásarmaðurinn hafi sagst „ekki geta meir“ Ekki með tök á eldinum og slökkviliðsstjóri hljóp á sig Hótar tollum vegna skógareldanna Yfir hundrað íbúðir gjörskemmdar Segir erfitt að horfa upp á nágranna missa aleiguna Rúmlega 50 heimili horfin í stórbruna í Drammen Flóka saknað og grunur um þjófnað Skotárás við Álaborg Boðar aukin ríkisafskipti og heitir því að verða áfram „maður fólksins“ Mótmælt í Kænugarði vegna uppsagnar varnarmálaráðherrans Reykur frá skógareldum í Kanada veldur vandræðum víða Gerðu árásir á Íran sjötta daginn í röð Trump sáir efasemdafræjum í aðdraganda þingkosninga Gróðureldar loga stjórnlaust og fólki ráðlagt að halda sig innandyra Fimmtíu og sjö með stöðu sakbornings vegna vanrækslu brúar R. Kelly biðlar til Trump um að milda fangelsisdóminn Testósterónmagn kannað hjá öllum hermönnum 30 ára og eldri Gefa upp dánarorsökina vegna „ónákvæmra og rangra frétta“ af andlátinu Bandaríkjamenn skjóta á skip sem hugðist leggja við bryggju á Kharg-eyju Tvö þúsund smitaðir og rúmlega sjö hundruð látnir Sex létust í árásum Rússa í nótt Fyrrum forsætisráðherra Noregs vill þjóðaratkvæði um aðildarviðræður Segja gervigreindina hafa valið þá sem sagt var upp og saka Meta um mismunun Carroll fær loksins miskabæturnar frá Trump Þurfa að hafa lokið herskyldu til að fá vernd innan ESB Sjá meira