Erlent

Synti tvo kílómetra bundinn í poka

Jón Júlíus Karlsson skrifar
Meðalsundhraðinn hjá Petkov var 0,7 km/klst.
Meðalsundhraðinn hjá Petkov var 0,7 km/klst. Mynd/AFP
Búlgarskur maður synti tvo kílómetra bundinn inn í poka og vonast þar með til að hafa sett nýtt heimsmet sem verður skráð í Heimsmetabók Guinness. Jane Petkov var í tvær klukkustundir og 45 mínútur að synda í vatninu Ohrid í Makedónía.

Petkov var bundinn með hendur að líkamanum og synti með svipaðri aðferð og höfrungar. Þessi 57 ára Búlgari fór ekki hratt yfir því meðalhraðinn var 0,7 km/klst.

„Mér var mjög kalt fyrsta klukkutímann en eftir það var þetta ekkert mál. Ef vatnið hefði verið heitara, þá hefði ég jafnvel synt 10 kílómetra,“ hefur BBC eftir Petkov.

Allar helstu upplýsingar um sundið voru skráðar og fastlega búist er við því að sundið verði skráð í Heimsmetabók Guinness. Ekki hefur komið nein tilkynning frá forsvarsmönnum Heimsmetabókarinnar enn sem komið er.

Jane Petkov var bundinn inn í poka og synti tvo kílómetra.Mynd/AFP



Fleiri fréttir

Sjá meira


×