Bein útsending: Reynt að losa Costa Concordia af strandstað Guðsteinn Bjarnason skrifar 16. september 2013 09:15 Framkvæmdir standa nú yfir. Mynd/AP
Miklar og flóknar framkvæmdir standa nú yfir á strandstað ítalska skemmtiferðaskipsins Costa Concordia, sem strandaði við Ítalíuströnd í byrjun síðasta árs. Verið er að gera þetta 114 þúsund tonna þunga skip klárt til brottflutnings, en stefnt er að því að draga það af strandstað og rífa það svo niður í brotajárn. Töluverð spenna fylgir framkvæmdinni því margt gæti farið úrskeiðis og engan veginn víst að allt heppnist. Skipið hefur legið á hliðinni í meira en hálft annað ár. Flotholt hafa verið fest við þá hlið skipsskrokksins, sem snúið hefur upp. Stálpallar hafa verið festir niður í hafsbotninn og togvírum komið fyrir, sem eiga að reisa skipið við þannið að það standi á pöllunum. Heppnist það, án þess að skipið hrynji saman undan eigin þunga, þá verða flothylki fest við skipsskrokkinn hinu megin. Flothylkin eiga síðan að lyfta skipinu á flot þannig að hægt verði að draga það burt. Umhverfið á strandstað er viðkvæmt. Þar er fjölbreytt lífríki þannig að aldrei kom til greina að sprengja og brjóta skipið niður á strandstað. Það hefði valdið alltof miklu tjóni á náttúrunni. Skipið liggur á tveimur klettahryggjum við eyjuna Giglio og gæti hæglega runnið til þegar reynt verður að hreyfa við því, eða jafnvel brotnað saman undan eigin þunga. Costa Concordia strandaði við strönd Toskanahéraðs Ítalíu þann 13. janúar árið 2012. Strandið kostaði 32 lífið og réttarhöldum yfir skipstjóranum, Francesco Schettino, er ólokið. Hann er sakaður um vítavert kæruleysi en neitar allri sök í málinu. Hér fyrir neðan má sjá beina útsendingu af aðgerðunum á strandstað.
Mest lesið Bandaríkjamenn gera loftárásir á Íran Erlent Ísraelar bíði ekki eftir grænu ljósi Trump Erlent Átta látnir hið minnsta eftir að kviknaði í loftbelg Erlent Sigríður fannst heil á húfi Innlent Tókst að leysa alla hvalina úr fjörunni Innlent Mikilvægt að fólk þurfi ekki að flýja húsnæði vegna ofnæmis Innlent Stunda njósnir og hafa athafnað sig á Íslandi Innlent Þriðjungur þjóðarinnar á Chess.com Innlent „Myndi ekki mæla með þessu við nokkurn mann“ Innlent Leiðtogi í hvítrússnesku andspyrnuhreyfingunni frjáls Erlent Fleiri fréttir Bandaríkjamenn gera loftárásir á Íran Átta látnir hið minnsta eftir að kviknaði í loftbelg Ísraelar bíði ekki eftir grænu ljósi Trump Leiðtogi í hvítrússnesku andspyrnuhreyfingunni frjáls Tugir látnir eftir þeir reyndu að sækja sér mat Tilnefna Bandaríkjaforseta til friðarverðlauna Nóbels Óvissu erlendra nemenda tímabundið eytt Aðgerðasinninn látinn laus en Hvíta húsið hyggst brottvísa Hátt í sjö hundruð látist í árásum Ísraela Takmarkið „enn sem komið er“ ekki að steypa klerkastjórninni af stóli Árásir halda áfram meðan fundað er í Genf Hyggst eftirláta á annað hundrað börnum sínum Telegram-auðinn Skrefi nær því að leyfa dauðvona fólki að leita sér dánaraðstoðar Sporvagni ekið inn í matarvagn í Gautaborg Danskur ráðherra kann ekki að meta auglýsingar Meta Hafnar tillögu um að verja fimm prósentum í varnamál Utanríkisráðherrar funda um Íran í Genf Frestar aftur TikTok-banni Kynnti sér mögulegar árásir: „Að klára verkið þýðir að rústa Fordo“ Áhlaup ICE og óvissan veldur vandræðum Farið í gegnum „kolefnisþakið“ eftir þrjú ár Sagði Khamenei „nútíma Hitler“ og að markmiðið sé að fella hann Geimskipið sprakk á jörðu niðri Finnar draga sig út úr sáttmála gegn jarðsprengjum Leita „fjandskapar“ á samfélagsmiðlum námsmanna Tala látinna í Kænugarði komin í tuttugu og átta Tugir særðir í Ísrael eftir árás Írana á spítala Vill ekki í stríð en segir klerkastjórnina ekki mega eignast kjarnorkuvopn Staðfesta bann á meðferð trans barna Óttast um líf fjölskyldu sinnar í Íran: „Ég sef ekki á nóttunni“ Sjá meira