Erlent

Þúsundir flýja eldgos

Guðsteinn Bjarnason skrifar
Mæðgur að yfirgefa heimili sitt vegna eldgossins.
Mæðgur að yfirgefa heimili sitt vegna eldgossins. Mynd/AP
Meira en sex þúsund manns hafa þurft að yfirgefa heimili sín á eyjunni Súmötru í Indónesíu eftir að eldgos hófst í fjallinu Sinabung.

Fjallið hefur legið í dvala í þrjú ár, en spýr nú ösku og hraunkúlum yfir nágrennið.

Eldgosið hófst snemma sunnudags og síðdegis í gær var orðið ljóst að fólki væri ekki óhætt í næsta nágrenni þess. Fólkið hefst nú við í bráðabirgðahúsnæði á átta stöðum.

Nokkrir hafa þurft að leita læknishjálpar vegna meiðsla.

Fjallið gaus síðast í ágúst árið 2010 og þá þurftu 30 þúsund manns að yfirgefa heimili sín tímabundið. Fjórar aldir voru þá liðnar frá síðustu eldsumbrotum í Sinabung.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×