Erlent

Vill meira stafapláss á ökuskírteinið

Haukur Viðar Alfreðsson skrifar
Eftirnafn Keihanaikukauakahihuliheekahaunaele er 35 stafa langt en aðeins er pláss fyrir 34 stafi á ökuskírteinum á Havaí.
Eftirnafn Keihanaikukauakahihuliheekahaunaele er 35 stafa langt en aðeins er pláss fyrir 34 stafi á ökuskírteinum á Havaí.
Janice Keihanaikukauakahihuliheekahaunaele, 54 ára kona á Havaí, skorar á yfirvöld þar í landi að auka stafaplássið á ökuskírteinum og öðrum löggildum skilríkjum.

Eftirnafn Keihanaikukauakahihuliheekahaunaele er 35 stafa langt en aðeins er pláss fyrir 34 stafi á ökuskírteinum á Havaí. Síðasta stafnum í nafni hennar er því sleppt á ökuskírteini hennar. Hefur hún lent í vandræðum þegar hún hefur þurft að framvísa skírteininu til lögreglu þar sem fullt nafn hennar er ekki að finna á skírteininu. Þá hefur meðal annars verið stungið upp á því að hún noti skírnarnafn sitt frekar.

„Þvílík vanvirðing við fólk á Havaí,“ segir Keihanaikukauakahihuliheekahaunaele, en margir samlandar hennar bera löng nöfn. „Ég hef borið þetta nafn í meira en 20 ár og það er mikil meining á bak við það,“ bætir hún við en hún tók nafn eiginmanns síns sem nú er látinn.

Eftir að Keihanaikukauakahihuliheekahaunaele fór með mál sitt í fjölmiðla bárust þau skilaboð frá samgönguráðuneytinu að reynt yrði að ráða bót á málinu sem fyrst, en áður höfðu fengist þau svör að það tæki tvö ár að auka stafafjölda skírteinanna um einn.

Í árslok er stefnt að því að hafa pláss fyrir allt að 40 stafi í skírnar- og eftirnöfnum og 35 í millinöfnum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×