Erlent

Fimm mánaða barn lést á farangursfæribandi

Haukur Viðar Alfreðsson skrifar
Frá flugvellinum í Alicante.
Frá flugvellinum í Alicante.
Fimm mánaða gamall drengur lést í hörmulegu slysi á Alicante-Elche flugvellinum í gærkvöldi eftir að móðir hans skildi hann eftir á farangursfæribandi.

Móðirin er sögð hafa lagt drenginn frá sér stutta stund á færibandið en skömmu síðar hafi það verið sett af stað. Drengurinn endaði í farangursflokkunarrýminu þar sem hann festist og lést. Var drengurinn úrskurðaður látinn á staðnum.

Nánari upplýsingar um slysið liggja ekki fyrir en móðir drengsins er sögð vera bandarísk og hafa flogið frá Lundúnum til Alicante í frí.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×