Erlent

David Frost látinn

David Frost lést úr hjartaáfalli í gær um borð í skemmtiferðaskipinu Queen Elizabeth.
David Frost lést úr hjartaáfalli í gær um borð í skemmtiferðaskipinu Queen Elizabeth.
Breski sjónvarpsmaðurinn David Frost er látinn 74 ára að aldri. Hann lést úr hjartaáfalli í gær um borð í skemmtiferðaskipinu Queen Elizabeth. 

Frost náði heimsfrægð þegar hann tók viðtal við Richard Nixon, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, á áttunda áratug síðustu aldar. Ferill hans hófst árið 1962 þegar hann stýrði þættinum That Was the Week That Was fyrir breska ríkisútvarpið BBC.

Á síðustu árum hefur Frost stýrt fjölmörgum viðtalsþáttum þar á meðal Frost Over the World á Al Jazeera sjónvarpsstöðinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×