Erlent

Vék sér undan árásum Steenbrücks

Guðsteinn Bjarnason skrifar
Merkel og Steenbrück í sjónvarpseinvígi.
Merkel og Steenbrück í sjónvarpseinvígi. Nordicphotos/AFP
Angela Merkel Þýskalandskanslari og Peer Steenbrück, leiðtogi Sósíaldemókrata, tókust í sjónvarpseinvígi á um kreppu evrulandanna og njósnir Bandaríkjanna, en voru sammála um að taka engan þátt í hugsanlegum loftárásum á Sýrland.

Þingkosningar verða í Þýskalandi á mánudaginn næsta. Sjónvarpseinvígið í gærkvöld þótti heldur dauflegt og varla líklegt til að breyta stöðunni. Tímaritið Der Spiegel segir að niðurstaðan hafi orðið núll-núll.

Merkel hefur enn yfirburði í skoðanakönnunum, og má það einkum þakka góðu ástandi í efnahagslífi Þýskalands. Þjóðverjar virðast upp til hópa ánægðir með hvernig Merkel hefur staðið sig gagnvart Grikklandi og öðrum evruríkjum, sem hafa glímt við erfiðan skuldavanda á síðustu misserum.

Steenbrück var í árásarham og reyndi að skjóta föstum skotum á Merkel, en hún vék sér fimlega undan og lét ekkert koma sér úr jafnvægi.

Þau voru sammála um að Þjóðverjar muni ekki taka þátt í loftárásum á Sýrland og Merkel sagðist fagna því að nú gefist nokkurra daga hlé til að ræða málin. Þar vísaði hún til ákvörðunar Baracks Obama Bandaríkjaforseta um að vísa málinu til Bandaríkjaþings.

Steenbrück gagnrýndi Merkel fyrir að hafa ekki gert hreint fyrir sínum dyrum hvað varðar víðtækar njósnir bandarísku leyniþjónustunnar, sem fylgist með síma- og netsamskiptum einstaklinga, stofnana og fyrirtækja víða um heim.

Merkel sagði hins vegar ekkert benda til þess að Bandaríkjamenn stundi slíkar njósnir í miklum mæli í Þýskalandi, og þetta mál hefur að minnsta kosti ekki enn dregið neitt úr fylgi hennar í Þýskalandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×