Obama leitar til McCains Guðsteinn Bjarnason skrifar 2. september 2013 15:00 Uppreisnarmenn í Damaskus beina vopnum sínum að stjórnarhermönnum. Nordicphotos/AFP
Barack Obama Bandaríkjaforseti á stuðning þingmanna við hernað gegn Sýrlandsstjórn engan veginn vísan. Hann reynir nú að fá repúblikanann John McCain til liðs við sig, þann sem atti kappi við Obama um forsetaembættið árið 2008. Bandaríska þingið kemur ekki úr sumarfríi fyrr mánudaginn 9. september, en þingmenn eru þegar byrjaðir að hittast í nefndum til að undirbúa umræður og atkvæðagreiðslu. Francois Hollande Frakklandsforseti hefur enn ekki látið neitt uppi um það hvort hann ætli að fá franska þingið í lið með sér, ákveði hann að grípa til aðgerða gegn Sýrlandi. Franska þingið kemur hins vegar saman á miðvikudag til að ræða málið, og Hollande gæti varla gengið gegn vilja þingsins nú þegar David Cameron, forsætisráðherra Breta, hefur beygt sig undir andstöðu síns þings við allan hernað gegn Sýrlandsstjórn, og Obama einnig ákveðið að bera slíkar aðgerðir undir Bandaríkjaþing. Franska stjórnin hyggst í dag leggja fyrir þingmenn sannanir þær, sem hún segist hafa undir höndum um að efnavopn hafi verið notuð í Sýrlandi, rétt eins og bæði bresk og bandarísk stjórnvöld hafa gert. Rússar segja hins vegar lítið mark takandi á þeim yfirlýsingum um sekt Sýrlandsstjórnar, sem komið hafa frá Bretum og Bandaríkjamönnum. Anders Fogh Rasmussen, framkvæmdastjóri NATO, hefur hins vegar í dag bæst í hóp þeirra sem segjast sannfærðir um sekt Sýrlandsstjórnar. Enn eru samt einhverjir dagar, jafnvel meira en vika, þangað til endanlega skýrsla kemur frá efnavopnaeftirlitsmönnum Sameinuðu þjóðanna, sem sneru heim frá Sýrlandi um helgina eftir að hafa stundað rannsóknir á vettvangi í úthverfum Damaskusborgar.
Mest lesið Vill þyngri refsingu fyrir Margréti Löf Innlent Viðar Örn gaf Sævari Louis Vuitton-tösku Innlent Játar innbrot í búin Innlent Sundþjálfari KR með hníf á lofti fyrir lykilfund sundfólks Innlent Norðmenn kynna „stærstu breytingarnar frá upphafi“ á EES samstarfinu Erlent „Er þetta ekki komið út í hártoganir?“ Innlent Þurftu að keyra á hnífamann sem slóst við lögreglu Innlent Lífsnauðsynlegt að meðhöndla risarækjur líkt og kjúkling Innlent Segir Karl hafa hljómað himinlifandi eftir dauða Díönu Erlent „Við höldum í fjallarómantíkina“ Innlent Fleiri fréttir Andersson fær stjórnarmyndunarumboðið Hákarl banaði sundmanni Segir „íslamista“ skýra velgengni vinstrimanna Danskar F-35 lentu á Grænlandi í fyrsta sinn Kínverjar leituðu til Írana fyrir hönd Sáda Norðmenn kynna „stærstu breytingarnar frá upphafi“ á EES samstarfinu Segir Karl hafa hljómað himinlifandi eftir dauða Díönu Slapp við fangelsisvist eftir að hafa notað maura í matargerð Rússar kjósa sér 450 skoðanabræður Rússar hafi skipulagt fjölþáttaárás gegn Póllandi Vill fara með Svíþjóð í nýja átt Telja Bandaríkjamenn kunna að hafa framið stríðsglæpi í Íran Kristersson sagði af sér eftir að öll atkvæði voru talin „Þetta snýst um fullveldi“ Þvertaka fyrir að Karl hafi sagt að Díana myndi gleymast fljótt Sænskur stórglæpon handsamaður í Marokkó Samþykktu frumvarp Grahams einu og hálfu ári seinna Hótar háum tollum og að hætta viðskiptum við ESB Varði breytingar á reglum um ráðningar og dýraníð Krefst þess með hástöfum að stýrivextir verði lækkaðir Nær hundrað prósent líkur á sigri vinstri blokkarinnar Kostaði 57 milljarða að verjast einni árás Hútar skutu niður herþotu Sáda Ný réttarhöld gætu reynst flókin í framkvæmd Afhjúpa RIS-vanda í Evrópu og Bandaríkjunum Býður Kanada aukaaðild að Evrópusambandinu Fréttaþyrla NBC hrapaði í Los Angeles Áfram gengur að stoppa upp í ósongatið Loka Kennedy-miðstöðinni eftir að Trump fékk ekki nafn sitt á bygginguna Myndu rústa Póllandi á tveimur til þremur dögum Sjá meira